Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Rasismi á Íslandi

Ég stakk af í frí fyrir helgi sem óhætt er að segja að hafi verið búið þegar meðlimur í íslensku þjóðfylkingunni hringdi í mig í hádeginu í dag. Sá var ósáttur við að ég hafi líkt flokknum við flokka þjóðernissinna, rasista og fasista í Evrópu og spurði mig hvort þetta væri eitthvað sem ég trúi í alvöru, að ég héldi í alvörunni að meðlimir flokksins væru rasistar, eða hvort þetta væri grín.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
13254794_10154848691054202_2422048883949623112_o

Þegar ég fór að rifja upp fyrir honum fordómafullan málflutning fulltrúa flokksins, hvers konar myndefni þeir notuðu, hvernig þeir voru margir hverjir fljótir að stökkva á stuðningsmannavagn Davíðs Oddssonar eftir að hann og þáttastjórnendur í Bítinu voru fyrir helgi að ala á ótta og hatri í garð múslima og hvernig talað væri um fólk af ákveðnum uppruna, trú, þjóðerni og menningu innan flokksins skellti hann á mig.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
13246240_10154848691279202_737640636419090013_o

Því miður tókst mér ekki að útskýra fyrir honum hvernig fordómar og rasismi eiga sér margar birtingarmyndir en hann kannaðist ekki við fordóma í íslensku samfélagi frekar en uppgang nýnasista og fasista í Evrópu. Af dæmunum sem fylgja hér með er auðvelt að sýna fram á að rasismi er sprellifandi á meðal Íslendinga og ef eitthvað er, þá er hann að vaxa og breiða úr sér. Það er mikið áhyggjuefni!

Image may be NSFW.
Clik here to view.
13227293_10154848691209202_4111434927903869404_o

Hin hefðbundna skilgreining á rasisma er að margra mati úrelt. Í dag er áherslan ekki einungis á yfirburði eins kynþáttar heldur er lögð áhersla á menningu og aðgreiningu hennar meðal þjóða og fólks af öðrum litarhætti. Hugmyndin um kynþætti skiptir ekki höfuðmáli lengur heldur menningarleg einkenni og hvað aðgreinir þau hvert frá öðru. Stundum er notað hugtakið menningarlegur rasismi yfir þessa skilgreiningu. Nú á dögum þykir slíkur rasismi, sem einnig hefur verið nefndur ný-rasismi, vera sjálfsagðari en þeir voru áður, og kristallast það m.a. í yfirlýstri andúð á innflytjendum, múslimum og útlendingum almennt.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
13198410_10154848691184202_5073296580184402860_o

Þeir sem tjá þennan nýja rasisma eru oft afsakandi í framkomu sinni, segjast ekki vera rasistar heldur vilji þeir einungis „ræða málin.“ Að ræða málin í þessu samhengi er einmitt hvort rasískar hugmyndir standist skoðun. Þá er algengt að orðræðan snúist um þessa meintu ógn sem steðjar af fjölmenningu, auknum innflytjendastraumi, eða ákveðnum þjóðfélagshópum. Vegna þessarar „hættu“ sem þeir telja sig skynja, láta þeir sig slík málefni sérstaklega varða.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
13239316_10154848690924202_1606430507474294428_n

Talsmenn þeirra sem sem aðhyllast slíkar skoðanir og eru andsnúnir fjölmenningu benda gjarnan á að afstaða þeirra sé ekki rasísk vegna þess að þeir segjast ekki leggja neina áherslu á kynþætti. Það séu frekar gagnrýnendur þeirra sem séu rasískir vegna þess að þeir eru að mála múslima og aðra trúarhópa upp sem kynþætti. Hins vegar hefur verið bent á að ekki sé hægt að segja að menningarlegur rasismi sé ekki rasismi, einfaldlega vegna þess að hugtakið eigi ekki við um kynþætti. Menningarlegur rasismi er afbrigði rasisma sem skiptir einfaldlega kynþætti út fyrir menningu. Menning er þannig orðin að hinum nýja kynþætti.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
13227131_10154848690849202_2326049632950520256_n

Eitt af höfuðeinkennum menningarlegs rasisma og þjóðernispopúlismans sem honum fylgir er að draga upp tvískipta mynd af þjóð sinni eða sínum menningarheimi annars vegar, og útlendingum eða öllum utanaðkomandi hinsvegar; „við“ og „hinir.“ Þetta er svarthvít mynd sem aðgreinir einnig hið „góða“ frá hinu „illa.“ Slíkum málflutningi hefur verið beitt öldum saman af þeim sem haldnir eru útilokandi þjóðernishyggju og útlendingahræðslu, enda er það elsta trixið í bókinni að ala á ótta til þess að fá fólk með þér á einhverja ákveðna skoðun.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
13217258_10154848691094202_7708437144251176816_o

Rasismi, sama í hvaða mynd hann birtist, er stórhættulegt samfélagsmein sem mikilvægt er að uppræta áður en það heldur áfram að breiða úr sér í samfélaginu. Þeir sem verða fyrir rasisma eða verða vitni að slíku eiga aldrei að þegja yfir því, skammast sín fyrir það eða halda að það segi eitthvað um hvernig manneskja þeir/þær eru. Að grípa til slíkra aðferða segir frekar allt um þann sem það gerir og hversu ömurlegan málstað sá er að reyna að verja. Það á hiklaust að skila skömminni til þeirra sem halda að þeir séu yfir aðra hafna vegna uppruna, trúar, þjóðernis eða menningar.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Screen Shot 2016-05-16 at 21.27.44

Segjum nei við rasisma og fordómum. Segjum nei við hatursorðræðu og persónuníð. Segjum nei við mismunun, óréttlæti og þeim sem ala á ótta, hatri og sundrungu!

Ást og friður!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283