Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Íbúðalánasjóður og þrælanýlendan Ísland

$
0
0

Fyrir ári síðan skrifaði ég færsluna Þrælanýlendan Ísland, þar sem ég bar saman vexti af húsnæðislánum í Hollandi og á Íslandi. Það þarf sennilega ekki að taka fram að ekkert hefur breyst – þrátt fyrir loforð yfirvalda – um allskonar fyrir alla. Undanförnu ári hefur verið sóað í áframhaldandi einkavinavæðingu, rifrildi um hitt og þetta, skandala og yfirklór.

Nú eru kosningar á næsta leyti. Fer reyndar eftir því hvenær núverandi stjórn ákveður að tíminn sé kominn, en það er kominn kosningaskjálfti í fólk. Það er kannski þess vegna sem Bjarni Ben hefur lofað að laga húsnæðisvandann með þessum orðum:

Hús­næðismál. Áfram verður gert ráð fyr­ir 1,5 millj­örðum króna í áætl­un­inni vegna stofn­fram­laga til upp­bygg­ing­ar á fé­lags­leg­um leigu­íbúðum.

Á sama tíma selur Íbuðalánasjóður 153 íbúðir. Ekki á frjálsum markaði. Einstaklingum er ekki boðið að kaupa þessar íbúðir sem gerðar voru upptækar eftir að allt hrundi og fólk fór á hausinn í hrönnum vegna forsendubrests.

Á meðan húsnæðisskortur er alvöru vandamál, eru hundruð íbúða seldar í lokuðu ferli.

Hvað verður um þær veit ég ekki, en við getum öll ímyndað okkur að nú græði einhver vel á óförum fyrrverandi íbúðaeigenda. Eignafærslan frá almenningi er í fullum gangi.

Ríkisstjórnin ætlar því að setja milljarða að sameiginlegum sjóðum okkar, skattfénu okkar, í að lappa upp á kerfi sem virkar ekki. Í stað þess að selja þessar 153 íbúðir á almennum markaði, er þeim komið í hendur fjársterkra aðila og svo megum við, skattgreiðendur, borga enn meira en komið er í einhverja plástra sem ekki eru að virka.

Ég minntist á vaxtamun á Íslandi og í Hollandi hér að ofan. Ég fletti þessu upp aftur og hér eru niðurstöðurnar:

Ísland:
Óverðtryggt með 7,45% föstum vöxtum í 60 mánuði
Óverðtryggt með 7,30% föstum vöxtum í 36 mánuði
Óverðtryggt með 7,25% breytilegum vöxtum
Verðtryggt með 3,85% föstum vöxtum í 60 mánuði
Verðtryggt með 3,65% breytilegum vöxtum

Holland:
Breytilegir vextir: 1,59%
Fastir vextir í 1 ár: 1,25%
Fastir vextir í 5 ár: 1,25%
Fastir vextir í 10 ár: 1,78%
Fastir vextir í 20 ár: 2,40%
Fastir vextir í 30 ár: 2,84%

Í staðinn fyrir að setja milljarða af skattfé okkar í plástra á handónýtt kerfi, gæti fjármálaráðherra hugsað dæmið upp á nýtt. Leyft okkur að kaupa íbúðirnar okkar aftur á frjálsum markaði. Það kostar ríkið ekkert og gæti komið vaxtastiginu niður í eitthvað sem gæti talist eðlilegt.

Það er eins og yfirvöld hafi engan áhuga á að bæta samfélagið og gera það lífvænlegt.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283