Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Þórunn Ólafsdóttir fær Mannréttindaverðlaun Reykjavíkur

$
0
0

Mannréttindaverðlaun Reykjavíkur voru í morgun veitt Þórunni Ólafsdóttur fyrir hjálparstarf í þágu flóttamanna á grísku eyjunni Lesbos. Þórunn hefur verið við sjálfboðaliðastörf þar síðan í ágúst í fyrra.

Fjallað hefur verið um óeigingjarnt starf Þórunnar í Kvennablaðinu en blaðið hefur fengið að birta skrif hennar sem einnig eru birt á vefnum Akkeri.is.

Sjá einnig: Á okkar vakt

Þeir sem vilja styrkja starf Þórunnar og fleiri sjálfboðaliða geta gert það með því að leggja inn á reikningsnúmer: 0133-26-004211 Kennitala: 421115-0790. Fjármunum verður varið til að styrkja hjálparstarf á Lesbos og áhersla lögð á að kaupa vörur og þjónustu í heimabyggð.

Sjá einnig: Hugleiðingar um einkalíf fólks

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði við verðlaunaafhendinguna í morgun að starf Þórunnar væri ómetanlegt. Þórunn hafi lagt sjálfa sig í hættu og lagt allt í sölurnar fyrir starf sitt að mannúðarmálum. Þá hafi hún verið óþreytandi við að fræða Íslendinga um stöðu flóttafólks í Evrópu.

Sjá einnig: Ungabörn eru að frjósa í hel í Evrópu


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283