Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Panamafélag Júlíusar Vífils hélt utan um falda sjóði dánarbús

Eftir að greint var frá aflandseyjarfélagi í eigu Júlíusar Vífils Ingvarssonar, fyrrverandi borgarfulltrúa, viðurkenndi hann fyrir systkinum sínum að um væri að ræða sjóði í eigu foreldra þeirra. Þetta kemur fram í fréttum RÚV en Kastljós mun fjalla ítarlega um málið.

Sjá einnig: Jón Gunnarsson telur Panamaskjölin hvítþvo Sjálfstæðisflokkinn

Leit hefur staðið yfir vegna sjóða þeirra Ingvars Helgasonar og Sigríðar Guðmundsdóttur en upplýsingarnar sem lekið var frá lögfræðistofunni Mossack Fonseca settu leitina í nýtt ljós.

Sjá einnig: Fjölskylda Bjarna á kafi í aflandseyjarbraski

Einhver auðugustu hjón landsins

Ingvar Helgason féll frá árið 1999 en þá hafði honum og eiginkonu hans, Sigríði Guðmundsdóttur tekist að byggja upp eitt stærsta fyrirtæki landsins. Fyrirtækið hóf starfsemi sína í íbúð þeirra hjóna með innflutningi á leikföngum og gjafavöru. Fyrirtæki hjónanna og barna þeirra átta, var orðið að stórveldi þegar Ingvar lést.

Sjá einnig: Fimm milljónir fyrir árás á RÚV en ein og hálf fyrir Panamaskjölin

Deilurnar snúa að eignum sem meirihluti erfingjanna telur að vanti í dánarbúið. Varasjóði Ingvars sem hann á að hafa safnað í erlendum banka. Í frétt RÚV af málinu segir að Sigríður Guðmundsdóttir hafi árangurslaust leitað af reikningunum eftir andlát Ingvars.

Uppfært: Eftirfarandi yfirlýsing frá Júlíusi var lesin í lok Kastljóss:

„Það litla sem ég hef séð að fram kemur í þessum þætti Kastljóss eru ýmist algjör ósannindi eða ómerkileg illmælgi. Sérstaklega er ótrúlega ófyrirleitið að halda því fram að ég hafi með einhverjum hætti gengið í eða sölsað undir mig sjóði í eigu annarra sem eru gróf ósannindi og mannorðsmeiðandi. Er yfirleitt hægt að bregðast við getgátum og dylgjum sem ekki byggja á neinum gögnum? Úr ágreiningi varðandi skipti á dánarbúi sem nú er í opinberum skiptum verður leyst með öðrum hætti en í Kastljósþætti ríkissjónvarpsins. Ég áskil mér allan rétt til að bregðast síðar við þessum þætti.“

Sjá umfjöllun Kastljóss á vef Ríksiútvarpsins


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283