Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Traust á lífeyrissjóðum í lágmarki

$
0
0

Rétt tæp tuttugu prósent aðspurðra bera fullkomið, mjög mikið eða frekar mikið traust til íslenskra lífeyrissjóða. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem Gallup vann fyrir Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmann VR. Könnunin sem var gerð í lok janúar mælir traust til ASÍ, Samtaka atvinnulífsins og lífeyrissjóðanna. Um 1500 manns voru í úrtakinu og svarhlutfallið var um 60%.

Um þriðjungur svarenda hefur enga sérstaka skoðun á lífeyrissjóðum á Íslandi. Afstaða til einstaka lífeyrissjóða var ekki könnuð heldur traust á Lífeyrissjóðum í heild. 52% svarenda segjast frekar, mjög og alls ekkert traust bera til íslenskra lífeyrissjóða.

Sjá einnig: Dekkjaverkstæði gegn verðkönnun ASÍ – FÍB skilur ekki feluleikinn

Í samtali við Kvennablaðið segist Ragnar hafa fengið veður af því að Alþýðusamband Íslands hafi látið gera viðhorfskönnun um samtökin nýlega og að niðurstaða þeirrar könnunar hafi verið sú að ASÍ skrapi botninn í trausti. Samhliða var spurt út í traust á Samtökum atvinnulífsins og íslenskra lífeyrissjóða. Sú könnun hefur ekki fengist birt af hálfu ASÍ en hún var framkvæmd í aðdraganda ASÍ þings í fyrra.

Sjá einnig: Verhamslosung

Borgaði að lokum fyrir eigin könnun

„Ég vildi bara fá að vita hvort grunur minn væri réttur og hvort þessar sögusagnir reyndust réttar. Það fékk ég staðfest með því að leggja út fyrir því sjálfur,“ segir Ragnar. „Bæði ég og Vilhjálmur Birgisson á Akranesi reyndum að fá aðgang að þessari könnun. Það var reynt en gekk ekki,“ segir Ragnar. Þá segist Ragnar hafa beitt sér fyrir því í stjórn VR að niðurstöður könnunarinnar yrðu birtar. „Það er verið að nota okkar peninga til að gera trúverðugleikakannanir á stofnun sem við erum hluti af. Í mínu tilviki er ég t.d. stjórnarmaður í VR sem borgar skatt til ASÍ.“ Að lokum fór svo að Ragnar keypti eigin könnun og greiddi úr eigin vasa. Þar er spurt um traust til Samtaka atvinnulífsins, Alþýðusambandsins og lífeyrissjóða.

Þær upplýsingar fengust hjá ASÍ að samtökin hafi gert slíkar kannanir á viðhorfum til samtakanna undanfarin ár. Þær séu til innanhúsbrúka og aldrei hafi staðið til að birta þær. Fjallað verður um niðurstöðu mælinga á SA og ASÍ á næstunni.

Lífeyrissjóðirnir undirbúa mikið kynningarstarf

„Þetta kemur í sjálfu sér ekki á óvart við höfum sjálf verið að gera könnun núna nýlega og hún sýndi svipaða niðurstöðu,“ segir Þorbjörn Guðmundsson, formaður Landsambands lífeyrissjóða, beðinn álits um niðurstöðu könnunarinnar. „Það er þá aðeins meira traust í þessari en okkar könnun mældi.“ Landsamband lífeyrissjóða lét gera viðhorfskönnun í apríl þar sem gríðarlegt vantraust mældist. Sú könnun hefur ekki verið birt og er aðeins til notkunar innhanhús. „Þetta kemur því ekki mikið á óvart en þetta eru hins vegar mikil vonbrigði.“ – Var traust til hvers og eins lífeyrissjóðs greint í ykkar könnun? „Nei, nei, sú könnun er líka almenn og hljómar mjög svipuð og sú sem þú vitnar til nú.“

Sjá einnig: Lífeyrissjóðskerfið er á góðri leið með að éta börnin okkar.

Gallup hefur undanfarið framkvæmd viðhorfskönnun þar sem traust á Samtökum atvinnulífsins, Alþýðusambandsins og Lífeyrissjóða er mælt. – Eru þetta sjálfstæðar kannanir eða hafið þið verið að kaupa þetta saman? „Nei, það var Landssamband lífeyrissjóða sem lét gera þessa könnun fyrir okkur,“ svarar Þorbjörn. Hann segir þessa niðurstöðu mikil vonbrigði sem kalli á viðbrögð að hálfu Landssamtaka lífeyrissjóða. „Það er það sem við erum að undirbúa núna.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283