Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sigmundur Davíð lærði ekkert í fríinu og sýnir enga auðmýkt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, hætti sem forsætisráðherra til að bjarga ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Þetta kom fram í viðtali við Sigmund í Sprengisandi í dag.

Hann vék því ekki að ósk almennings né til að viðhalda trausti almennings á lýðræðislegu ferli og stjórnsýslu. Hann segist ekki hafa farið með neina tillögu um þingroft til forseta. „Ég gætti þess meira að segja að taka engin gögn, enga tillögu og ekkert slíkt með mér á fund forsetans,“ sagði Sigmundur.

Í næstu andrá sagði hann þó að hann hafi vilja vera undirbúinn fyrir allt og því hefðu embættismenn mætt við öllu búnir. – Hann [ forsetinn ]sagði að þetta hefði verið tilbúið í tösku?

„Já, já, embættismenn fylgdu með mér og voru með, hefði forsetinn viljað skoða það og meta hvernig best væri að gera ráðstafanir, þá stóð það allt til boða. Ég, eins og ég held að menn hljóta að skilja, taldi að forsetinn gæti viljað vera sem best upplýstur um hvað kynni að gerast.“
– Þú ert að segja án þess að segja það að forsetinn sagði ósatt um þennan fund ykkar?

„Ég fann það allavega á fundinum að hann hefði viljað, úr því sem komið var, að ég hefði lýst því yfir að ég ætlaði bara að rjúfa þing ‘no matter what.’ Þess vegna taldi ég ástæðu til að ítreka það, og nú er ég kannski aðeins farinn að brjóta þá reglu sem ég er að reyna að fylgja með því að lýsa ekki of ítarlega þessum fundi, en vegna þess að ég skynjaði þetta og það ætti þá væntanlega að vera einhver leikur. Útspil í framhaldinu. Þá held ég að ég hafi að minnsta kosti fimm sinnum tekið það fram við forsetann að sjálfsögðu, rétt eins og ég hafði skrifað í þessari Facebook-færslu áður en ég lagði af stað á Bessastaði, vildi ég að ríkisstjórnin héldi áfram og að það myndi ekki hvarfla að mér að rjúfa þing á meðan ríkisstjórnin hefði meirihluta í þinginu.“

Munurinn á þessari útgáfu af því sem gerðist á fundinum og það sem er opinbert þegar er að hér er Sigmundur í hlutverki sáttasemjara sem krefst enskis en er undirbúinn undir allt. Ábyrgðin er annarra.

Bjargvættur Framsóknar og Sjálfstæðisflokks

„Ég tel að ef ég hefði ekki hætt þá væri Framsóknarflokkurin ekki í ríkisstjórn núna og ekki Sjálfstæðisflokkurinn sem slíkur,“ svaraði Sigmundur Davíð um hvers vegna hann hefði hætt sem forsætisráðherra. „Ríkisstjórnin hefðu farið frá í ákveðinni atburðarás sem ég gat nokkurnvegin ímyndað mér hvernig yrði. Þannig að ég taldi mjög mikilvægt, fyrst og fremst, að tryggja það að þessi góðu verkefni sem hafa verið í gangi næðu fram að ganga. Að við næðum að klára þetta. Því það hefur gengið alveg ótrúlega vel. Ég var bjartsýnn þegar við byrjuðum en það hefur gengið miklu betur en jafnvel ég þorði að vona.“

Á skjön við atburðarásina

Þessi lýsing forsætisráðherran fyrrverandi á eigin hvötum er á skjön við atburðarás málsins. Af lýsingu Sigmundar að dæma var hann rekinn áfram af mikilli herkænnsku og vilja til að klára verk ríkisstjórnarinnar en ekki tryggja persónulegum hagsmuni og völd. Raunin er sú að ráðherrann fór í viðtal um miðjan marsmánuð þar sem eignarhald hans á félaginu Wintris Inc, var afhjúpað.

Örfáum dögum síðar setti Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona Sigmundar, tikynningu á Facebook þar sem fram komu villandi upplýsingar um fyrirtækið. Anna Sigurlaug ýjaði að því að fyrirtækið væri í Bretlandi með því að tala um erlent fyrirtæki í breskum banka. Talaði um gróu á leiti vitandi vel að blaðamennirnir Sven Bergman og Jóhannes Kr. Kristjánsson höfðu ítarleg gögn, undirsskrift og afrit af vegabréfi ráðherrans. Næsta skref var að grafa undan fjölmiðlum þá einkum RÚV og blekkja kollega sína í Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokks með yfirlýsingum sem ekki standast fyrirliggjandi gögn. Sigmundur Davíð fór meðal annars á fund forseta og krafðist þingrofs eftir að hafa fundað með Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins. Þá er vert að benda á furðulega yfirlýsingu sem aðstoðarmenn hans Sigmundar sendu erlendum fjölmiðlum um að hann væri ekki hættur heldur farinn í frí.

Á þessu er löngu ljóst að Sigmundur Davíð var í Wintrismálinu rekinn áfram að persónulegum hvötum en ekki umhyggju fyrir verkefnum ríkisstjórnarinnar.

Í þættinum endurtók Sigmundur fullyrðingar um að forsetinn hafi logið og rofið trúnað við sig. Það hefur komið fram áður en ekkert hefur verið lagt fram til sönnunar á þeirri yfirlýsingu.

Um góðu verkin og loftárasir

„Planið er allt að ganga upp. Það hefði verið alveg hræðilegt ef að einhver atburðarás, sem var um margt utan mjög skrýtin og á óvenjulegum tíma þegar það var kannski ekki svigrúm til að meta og ræða staðreyndir mála, ef hún hefði orðið til að þessi vinna færi forgörðum og við fengjum ekki tækifæri til að fylgja henni eftir,“ sagði Sigmundur. Hann var spurður hvort sýn hans á málið hafi eitthvað breyst eftir fríið. Hann hafi jú fengið tóm til að horfa á málið í meiri ró en í atburðarásinni miðri. „Það er nú reyndar mjög oft þannig og ekki hvað síst þessi misserin og árin, og ekki bara á Íslandi, að það verður uppi fótur og fit af ýmsum ástæðum. Það þarf stundum ekki mjög mikið til. Við þær aðstæður getur verið mjög erfitt að meta aðstæður. Það getur verið mjög erfitt að gera sér grein fyrir því hvað snýr upp og hvað snýr niður. Þetta er ekki æskileg þróun, held ég, því að það getur skapað allskonar hættu ef ástand í samfélagi er þannig að menn eru fljótir að rjúka upp og dæma,“ sagði ráðherrann fyrrverandi.

Hann svaraði því ekki efnislega hvernig sýn hans hefði breyst en ýjaði eins og svo oft áður að því að gagnrýnin sem hann fékk hafi verið rekin áfram af múgæsingi og vanþekkingu.

Söguhönnun Sigmundar

Aðspurður um þátt forsetans og fund þeirra tveggja þar sem Sigmundur fór fram á þingrof segir Sigmundur alla sjá að hann hafi verið að reyna að halda ríkisstjórninni saman. „Það sér það nú hver maður og nú kemur aftur að gagni að andrúmsloftið er orðið þannig að menn geta skoðað hlutina, raðað þeim upp í réttri röð og metið þá. Það sér það nú hver maður að ég var á þessum tíma að reyna hvað ég gat að halda ríkisstjórninni saman og lagði á það mikla áherslu að hún þyrfti að halda áfram til þess að klára þessi verkefni. Það er þess vegna sem að ég sendi frá mér þessa tilkynningu áður en ég fer á Bessastaði þess efnis að stjórnin verði að halda áfram.“ Þar vitnar Sigmundur Davíð til færslu á Facebook þar sem hann segir: „Jafnframt fór ég yfir það með formanni Sjálfstæðisflokksins að ef þingmenn flokksins treystu sér ekki til að styðja ríkisstjórnina við að ljúka sameiginlegum verkefnum okkar myndi ég rjúfa þing og boða til kosninga hið fyrsta.“

Þessum orðum var almennt tekið sem hótun enda ætluð sem slík. Atburðarásin sem á eftir fylgdi staðfesti þann grun rækilega.

Um þessi orð segir Sigmundur að hann hafi látið það fylgja í yfirlýsingunni sem hann telji í raun segja sig sjálft að ef þingmenn annars stjórnarflokksins geti ekki sagt skýrt að þeir ætli að fella vantrauststillögu gegn stjórninni.

„þá er það nú þannig, og ég hugsa að það séu ekki margar undantekningar frá því, að ef formaður annars stjórnarflokksins lætur hafa eftir sér að það sé ekkert víst að stjórnin haldi áfram. Þá er stjórnin fallin.“ – Fannst þér Bjarni gera þetta? „Já hann sagði þetta en ég tek það nú fram að ég tel að hann sjálfur hafi vilja halda stjórnarsamstarfinu áfram og vilji það, eins og kom nú reyndar í ljós.“

Hlusta má á viðtalið í heild hér.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283