Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Góð fyrir minnið, spurning með blóðþrýstinginn

$
0
0

Ég held að það sé kominn tími á köku. Ekki þó einhverja dísæta marensbombu, ég hef aldrei verið mikið fyrir þær og finnst eiginlega merkilegt hvað þær eru vinsælar. Öðru máli gegnir um súkkulaðikökur (ef þær eru ekki of sætar) og svo var ég einmitt að lesa í dag að súkkulaði hefði svo góð áhrif á minnið, einkum hjá konum á aldrinum 50-65 ára. Ég er akkúrat á miðju því bili svo að mig fór strax að langa til að bæta minnið með súkkulaðiköku.

Þessi er fyrir lakkrísvini og kannski ætti að merkja hana með viðvörun fyrir þá sem þurfa að passa upp á blóðþrýstinginn, ég borðaði allavega ekki mikið af henni þótt mér þætti hún ansi góð. Ég er hrifin af lakkrísbragði af kökum (ef það er góður lakkrís sko) en ekki af lakkríssælgæti í kökum og smákökum. En það er til ráð við því …

_MG_9885

Ég átti sem sagt lakkrísduft frá Johan Bülow og notaði það í kökuna sjálfa. Reyndar má líka  sleppa því og hafa þetta bara súkkulaðiköku með lakkrískremi. Í kremið og skreytinguna notaði ég svo lakkríssíróp frá Johan Bülow.

_MG_9887

Ég byrjaði á að kveikja á ofninum og stilla hann á 180°C. Svo bræddi ég 100 g af súkkulaði í vatnsbaði. Notaði venjulegt en það mætti líka vera 70% súkkulaði.

_MG_9889

Ég hrærði svo saman 200 g af púðursykri og 175 g af linu smjöri þar til þetta var ljóst og létt og þeytti svo þremur eggjum saman við, einu í senn.

_MG_9891

Síðan hellti ég súkkulaðinu út í og hrærði því saman við.

_MG_9894

Svo vigtaði ég 150 g af hveiti, blandaði 1½ tsk af lyftidufti og 1 msk af lakkrísdufti saman við og hrærði þessu svo saman við deigið. Best er þó að hræra ekki meira en rétt þarf til að allt blandist saman.

_MG_9897

Ég setti svo deigið í smurt og pappírsklætt smelluform og bakaði kökuna neðst í ofni í um 25 mínútur. Lét hana kólna alveg á grind.

Á meðan kakan var að kólna bjó ég til lakkrískremið.

_MG_9920

Ég hrærði 200 g af linu smjöri og 250 g af flórsykri mjög vel saman og hrærði svo 1 eggjarauðu og 1 msk af lakkríssírópi saman við.

_MG_9925

Kremið ætti að vera nokkuð stíft.

_MG_9973

Ég smurði svo kreminu ofan á kökuna þegar hún var orðin alveg köld og dreypti dálitlu lakkríssírópi yfir hana úr teskeið.

_MG_9991

Þetta var nú ekki slæmt. Og bætti minnið örugglega alveg helling.

*

Lakkrís-súkkulaðikaka    

100 g suðusúkkulaði

200 g púðursykur

175 g smjör, lint

3 egg

150 g hveiti

1½ tsk lyftiduft

1 msk lakkrísduft (má sleppa)

Lakkríssmjörkrem

200 g smjör, lint

250 g flórsykur

1 eggjarauða

1 msk lakkríssíróp + aðeins meira til að setja yfir

Hrærðu smjör og flórsykur mjög vel saman. Hrærðu svo eggjarauðunni og lakkríssírópinu saman við. Smyrðu kreminu á kökuna og dreyptu taumum af lakkríssírópi yfir með teskeið. Láttu kremið kólna þar til það er stíft.

Heimsækið vef Nönnu hér.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283