Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Píratspjallinu settar reglur

$
0
0

Meðal Pírata er nú til umræðu að setja Pírataspjallinu samskiptareglur. Drög stjórnendahóps spjallsins hafa verið til umræðu síðastliðinn sólarhring. Pírataspjallið er virkasti umræðuvettvangur Pírataflokksins en hefur oft vakið athygli fyrir harkalega og fálmkennda umræðu. Spjallið hefur því verið nokkuð umdeilt bæði innanflokks og utan.

Staða Pírataspjallsins innan flokksins hefur um leið verið óviss þrátt fyrir mikla virkni. Þannig hefur því verið haldið fram að Pírataspjallið hafi enga stöðu innan flokksins og því sé ekki um hitamælingu á stemmingu í flokknum. Raunin hefur þó verið só að Pírataspjallið er vettvangur margra virkustu meðlima flokksins sem og kjörinna fulltrúa og embættismanna. Undir lok síðustu ár urðu deilur um spjallið eftir að nafni þess var breytt í „Þjóðarsálin“ og tilraun gerð til að fjarlægja það flokknum.

Í skoðanakönnun þar sem meðlimum spjallsins er boðið að kjósa hafa tæplega 400 manns hakað samþykki sitt við regludrögin. Tæplega tíu eru í andstöðu. Verði reglurnar samþykktar í núverandi mynd hafa stjórnendur spjallsins heimild til að grípa inn og ‘frysta’ umræðuþræði sem hafa þann tilgang einan að „kalla fyrst og fremst á neikvæð viðbrögð frekar en umræðu um málefni.“ Notendum spjallsins er heimilt að taka þátt í umræðunum nafnlaust, það er með gervinotanda á Facebook.

Varanlegt bann er lagt við beinum hótunum, sölu á lyfjum eða vímuefnum, birtingu kláms, óviðeigandi auglýsinga og ruslpósts.

Áhugasamir geta lesið umgengnisregludrögin hér:

  1. Á Pírataspjallinu ber hver og einn ábyrgð á eigin orðum. Pírataspjallið fellur undir þær notendareglur sem Facebook setur öllum notendum og er meðlimum spjallsins bent á að kynna sér þær. Verði meðlimir varir við að aðrir brjóti þær reglur sem facebook setur er þeim bent á að nýta sér viðeigandi tilkynningarmöguleika Facebook. Brot á reglum Pírataspjallsins má tilkynna til umsjónarmanna og eru notendur hvattir til þess.
  2. Pírataspjallið hefur undirspjallsvæði fyrir ýmis umræðuefni. Umsjónarmenn mega vísa umræðuefnum sem eru stöðnuð eða komin í þrot á undirspjallsvæði og frysta pósta af þessari ástæðu. Þrír umsjónarmenn þurfa að samþykkja slíka aðgerð.
  3. Umsjónarmenn mega frysta pósta þar sem ásetningur gengur út á að kalla fyrst og fremst á neikvæð viðbrögð frekar en umræðu um málefni. Þrír umsjónarmenn þurfa að samþykkja slíka aðgerð.
  4. Gerviprófílar eru leyfðir en persónuárásum eða ærumeiðingum frá slíkum prófílum verður eytt. Þrír umsjónarmenn þurfa að samþykkja slíka aðgerð.
  5. Umsjónarmenn geta veitt áminningar vegna brota á þessum reglum. Við þriðju áminningu er viðkomandi settur í tveggja til þriggja sólahringa bann og þurfa þrír umsjónarmenn að samþykkja bannið. Eftir að banni er aflétt er sá brotlegi á reynslutíma á Pírataspjallinu í eina viku og meðan á reynslutíma stendur þarf ekki nema eina áminningu til að sá brotlegi sæti einnar viku banni ef þrír umsjónarmenn samþykkja það.
  6. Brot sem kalla á varanlegt bann eru þessi: Beinar hótanir, en þær verða einnig tilkynntar til lögreglu, sala á lyfjum eða vímuefnum, birting á klámi, óviðeigandi auglýsingar eða annars konar ruslpóstun. Einn umsjónarmaður getur tekið ákvörðun um slíkt bann.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283