„Ísland er óborganlegt land,“ skrifar Jón Steinsson, hagfræðiprófessor við Columbia Háskóla, á Facebook í kjölfar frétta af því að Kaupþingsfangarnir Ólafur Ólafsson, Sigurður Einarsson og Magnús Guðmundsson, losnuðu fyrr af Kvíabryggju en fangar fá alla jafna.
Lögum um fullnustu fangavistar var breytt að því er virðist með hagsmuni ríkra fanga einna að leiðarljósi. Breytingin á lögunum var samþykkt í flýti. Unnur Brá Konráðsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, er sögð hafa beytt sér af hörku fyrir breytingunum. Í stuttu máli felst breytingin í sér að í staðin fyrir fangar fái 2.5 daga í rafrænu eftirliti fyrir hvern dæmdan mánuð þá fá þeir nú 5 daga. Á Vernd komust fangarnir eftir að hafa afplánað eitt ár á Kvíabryggju af fjórum.
Við komuna á Vernd fengu fangarnir nýjar dýnur. Vistmönnum hafði áður verið tilkynnt að aðeins „sumir“ fangar fengju nýjar dýnur. Kvennablaðið fjallaði um tilraunir þeirra Ólafs og Hreiðars Márs SIgurssonar til að reka sérstakt lúxusúrræði fyrir ríka fanga. KOM almannatengsl sendi í kjölfarið tilkynningu fyrir hönd fanganna þar sem neitað var fyrir málið.
Um síðustu helgi brotlenti þyrla Ólafs suður af nesjavallavirkjun. Ólafur var meðal þeirra sem slösuðust. Í kjölfarið hafa vaknað umræður um það hvernig geti verið að föngum sem hafa fjárráð til að eiga og reka þyrlu sé heimilt að ferðast nánast hömlulaust.
„Nú gerist það að auðmenn landsins brjóta alvarlega af sér og hljóta þunga dóma. Þá vill svo til að reglum um fangelsisvist er breytt þannig að þessir auðmenn geti verið frjálsir ferða sinna á daginn — svo frjálsir að þeir geta farið með erlenda gesti sína í útsýnisflug á þyrlunum sínum,“ skrifar Jón Steinsson um málið. „Á ensku er stundum sagt: You can´t make this s*** up. Er nema von að margir séu búnir að fá nóg af stjórnmálaflokkum sem þora ekki að standa uppi í hárinu á ólígörkum landsins.“
Þrátt fyrir að starfa í Bandaríkjunum hefur Jón ekki verið svo heppinn að sleppa alveg við þöggunartilrauni valdaklíka á Íslandi. Jón hefur löngum vakið athygli fyrir harkaleg og greinargóð skrif um íslenska valdastétt, sérstaklega útgerðarmenn. Árið 2014 greindi Kjarninn frá því að áhrifamaður í íslensku atvinnulífi hefði reynt að grafa undan Jóni hjá vinnuveitendum hans í Columbia-háskóla. Maðurinn sendi deildarforseta hagfræðideildar Columbia bréf og gagnrýndi skrif Jóns um íslensk samfélagsmál.