Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Yfirlýsing frá RME vegna fullyrðinga Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar

$
0
0

 

12938108_683699258437086_4534182290959809967_n-2Yfirlýsing vegna fullyrðinga Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins:
Eftir viðtalið þann 11. mars síðastliðinn við Sigmund Davíð Gunnlaugsson þáverandi forsætisráðherra sem fram fór í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu, var Sigmundi Davíð 6 sinnum boðið að koma fram í öðru viðtali til að útskýra aðkomu sína að aflandsfélaginu Wintris Inc.

Strax eftir viðtalið 11. mars var óskað eftir öðru viðtali við Sigmund Davíð Gunnlaugsson þáverandi forsætisráðherra. Það var gert með formlegum hætti í samtali við aðstoðarmann hans, Jóhannes Þór Skúlason. Meðfylgjandi eru tölvupóstar frá Reykjavik Media, ICIJ og SVT sem sendir voru á aðstoðarmann Sigmundar Davíðs þar sem honum er boðið í viðtal. Að auki bauð ritstjórn Kastljóss Sigmundi Davíð og eiginkonu hans ítrekað í viðtal eftir að samstarf Reykjavik Media og Kastljóss hófst. Það var ekki skilyrði að Jóhannes Kr. Kristjánsson tæki viðtalið ef Sigmundur Davíð vildi það síður.
Það er því ekki rétt sem Sigmundur Davíð hélt fram á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins í dag að hann og starfsfólk hans hafi aflað gagna og reynt að svara öllum spurningum varðandi Wintris Inc og að handrit að þættinum hafi verið skrifað fyrirfram. Handrit þáttarins byggði á þeim upplýsingum sem þá lágu fyrir. Hefði Sigmundur Davíð þegið ítrekuð boð um að koma fram í viðtali til að útskýra aðkomu sína að Wintris Inc, hefði handrit og uppbygging þáttarins án efa orðið öðruvísi.

Strax eftir viðtalið í ráðherrabústaðnum hringdi blaðafulltrúi forsætisráðherra í Nils Hanson aðalritstjóra Uppdrag Granskning hjá SVT og krafðist þess að þeim hluta viðtalsins sem sneri að Wintris Inc, yrði eytt og ekki sent út. Nils Hanson varð ekki við þeirri beiðni.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fékk því margítrekuð tækifæri til að útskýra aðkomu sína og eiginkonu sinnar að aflandsfélaginu Wintris Inc, sem hann kaus að gera ekki.

Jóhannes Kr. Kristjánsson, ritstjóri Reykjavik Media
Aðalsteinn Kjartansson, fréttamaður Reykjavik Media
Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss RÚV
Helgi Seljan, fréttamaður Kastljóss RÚV
Nils Hanson, ritstjóri Uppdrag Granskning SVT
Sven Bergman, fréttamaður Uppdrag Granskning SVT
Gerard Ryle, framkvæmdastjóri ICIJ

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283