„Við erum öll svo hugrökk þegar við tölum um þekkta/fræga fólkið. Við gagnrýnum það, gerum grín að því, hlutgerum það, og margt verra. Værum við eins djörf ef við stæðum augliti til auglitis við þau? Ég býð ykkur að horfast í augu við þau og hugsa málið.“
Þetta er yfirskrift ljósmyndaverksins Face me sem ljósmyndarinn Finnbjörn „Finni“ Finnbjörnsson á veg og vanda af og er lokaverkefni hans í ljósmyndun eftir 1. ár í námi. Verkið samanstendur af nærgöngulum ljósmyndum af tólf þjóðþekktum Íslendingum.
Við heyrðum í Finnbirni og spurðum hann um aðeins út í tilurð verksins:
„Ég var að ljúka 1. ári í Ljósmyndaskólanum og þar setjum við nemendurnir upp sýningu saman í lok skólaársins. Þetta var verkefnið mitt á sýningunni. Ég hef eins og sjálfssagt margir aðrir tekið eftir ótrúlegum ummælum um fræga/þekkta fólkið á netinu og er enginn hvítþveginn engill þegar kemur að þannig löguðu sjálfur.“
„Ég fór að hugsa um hversu fjarlægt þetta fólk er orðið okkur af völdum internetsins og það í svona litlu þjóðfélagi. Ég fór að ímynda mér hvort „virkir í athugasemdum“ myndu þora að segja það sem þeir skrifa í ummælum –við umrædda manneskju, augliti til auglitis. Þá kom þessi hugmynd.“
Hvernig valdirðu persónurnar í ljósmyndatökurnar?
„Ég valdi fólk sem ég taldi vera umtalað og umdeilt og fékk aðstoð frá kennurum og samnemendum. Eftir tökur var svo valið úr hvað af myndunum passaði best saman og myndaði sterka seríu.“
Þekktar persónur eiga fjölskyldu og vini
Finnst þér umræða um opinberar persónur vera óvægin?
„Mér finnast umræður á netinu mjög óvægnar og tel að það stafi af þessari fjarlægð sem netið skapar. Oft finnst mér þetta vera gott fólk sem hugsar þetta bara ekki alla leið. Það er eins og að fólk átti sig ekki á að þetta eru ekki skáldaðir karakterar heldur raunverulegt fólk. Allt fræga fólkið á fjölskyldu og vini.“
Hvert er markmið verkefnisins?
„Markmið verkefnisins er að vekja fólk til umhugsunar og kannski minnka þessa fjarlægð eitthvað örlítið.“