Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi innanríkisráðherra, ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi setu í næstu þingkosningum. Þetta tilkynnti Hanna Birna flokksfélögum sínum í dag.
Tilkynning Hönnu Birnu í heild:
„Nú, þegar Sjálfstæðisflokkurinn er að hefja undirbúning fyrir komandi alþingiskosningar, vil ég greina ykkur frá þeirri ákvörðun minni að gefa ekki kost á mér í þeim kosningum.
Ástæðan er einföld; mig langar að leita nýrra áskorana og nú er einfaldlega komið að þeim tímamótum í mínu lífi að ég tel rétt að nýta reynslu mina, orku og starfskrafta annars staðar en á vettvangi stjórnmálanna.
En þó ástæðan sé einföld var endanleg ákvörðun það ekki. Frá því ég man eftir mér hef ég haft mikinn áhuga á stjórnmálum og hef notið þess að vinna með ykkur og fyrir ykkur í þágu hugsjóna okkar í Sjálfstæðisflokknum. Ég er innilega þakklát fyrir þann mikla stuðning sem ég hef ítrekað notið meðal ykkar, stolt af þeim fjölbreyttu verkefnum sem þið hafið treyst mér fyrir og ánægð með þann árangur sem við höfum sameiginlega náð.
En þó að þessi ákvörðun hafi verið tekin þá kveð ég ekki alveg strax. Ég mun klára það tímabil sem ég var kjörin til, fylgjast með kosningabaráttunni næstu mánuði úr aðeins meiri fjarlægð en oft áður og óska Sjálfstæðisflokknum góðs gengis í þeim mikilvægu verkefnum sem framundan eru.“