Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Netákall: Ofbeldi á ekki heima á Ólympíuleikunum

$
0
0

Smelltu hér til að krefjast þess að Ólympíuleikarnir fari ekki fram í skugga ofbeldis.

Gífurleg aukning hefur orðið á óhóflegri valdbeitingu lögreglunnar í Ríó de Janeiro á undanförnum árum og er meirihluti fórnarlambanna ungir svartir menn úr fátækrahverfum Brasilíu.

Þegar heimsmeistaramótið í knattspyrnu var haldið í Brasilíu árið 2014 myrti lögreglan 580 manns sem er 40% aukning frá árinu 2013. Árið 2015 var talan komin upp í 645 manns sem lögreglan felldi.

Óðum styttist í að Ólympíuleikarnir verði haldnir í Brasilíu og hefur eftirlit lögreglu og hers verið hert í aðdragandanum. Íbúar fátækrahverfa í Ríó de Janeiro lifa í stöðugum ótta við aðgerðir hers og lögreglu. Ekki að ástæðulausu. Það sem af er árinu 2016 hafa morð af hálfu lögreglu aukist um 10% í Ríó de Janeiro miðað við sama tímabil í fyrra.

Á næstu vikum í aðdraganda Ólympíuleikanna er margt sem yfirvöld og skipuleggjendur leikanna geta og verða að hrinda í framkvæmd til að tryggja að öryggisráðstafanir brjóti ekki gegn mannréttindum.

Gríptu til aðgerða og segðu stjórnvöldum í Brasilíu að þau séu ábyrg fyrir því að koma í veg fyrir ónauðsynlega og óhóflega valdbeitingu af hálfu lögreglu eða hers; að koma í veg fyrir mannréttindabrot í jaðarsamfélögum; að koma á fyrirkomulagi ábyrgðar á öllum mannréttindabrotum sem framin eru af lögreglu- og/eða hermönnum; að rannsaka brotin og draga hina ábyrgu fyrir dóm og styðja þolendur og fjölskyldur þeirra að fullu.

Tilkynning frá Amnesty International


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283