Þjóðhagsráð kom saman til fundar í morgun. Ráðið er skipað fulltrúaum Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samtaka atvinnulífsins og Seðlabanka Íslands ásamt forsætisráðherra og fjármálaráðherra. Allir sem einn eru karlar.
Í ráðinu sitja þeir Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, Halldór Halldórsson formaður Sambands sveitarfélaga og Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Þá eru tveir ráðherrar í ráðinu Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Stofnun Þjóðhagsráðs er í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í maí í fyrra, en hún var gefin út til að greiða fyrir gerð kjarasamninga. Einnig er kveðið á um stofnun Þjóðhagsráðs í rammasamkomulagi aðila á vinnumarkaði frá því í október.
Ráðið skal beina umfjöllun sinni sérstaklega að þáttum þar sem samhæfingu er helst ábótavant. Þjóðhagsráð tekur ekki ákvarðanir í efnahags- eða kjaramálum og stofnun þess breytir ekki lögbundnum hlutverkum þeirra aðila sem að ráðinu standa.
Í Þjóðhagsráði sitja forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Seðlabanka Íslands. Heildarsamtök launafólks sem aðild eiga að rammasamkomulaginu hverju sinni geta gerst aðilar að Þjóðhagsráði. Hvorki ASÍ né BSRB taka þátt í Þjóðhagsráði og því eru fulltrúar launafólks ekki með á fundi jakkafataklæddra karla.
Í sameiginlegri yfirlýsingu BSRB og ASÍ segir að gerð hafi verið krafa um að Þjóðhagsráð fjalli ekki aðeins um forsendur efnahagslegs stöðugleika heldur einnig forsendur fyrir félagslegum stöðugleika í íslensku samfélagi. Á það hafi ekki verið fallist. „Fulltrúar BRSB og ASÍ hafa lagt til að myndaður verði annar samhliða vettvangur um samræðu fulltrúa stjórnar og stjórnarandstöðu og fulltrúa samningsaðila á vinnumarkaði. Þar geti þessir aðilar freistað þess að mynda breiða samstöðu um meginviðfangsefni og forgangsröðun í uppbyggingu velferðarkerfisins og fjármögnun þess. Samræða um þessa hugmyndafræði hefur verið í gangi undanfarið en engin niðurstaða hefur náðst,“ segir í yfirlýsingunni.
Starfsemi Þjóðhagsráðs skal tekin til endurskoðunar fyrir árslok 2018. Jafnframt er heimilt að endurmeta starfsemi ráðsins ef rammasamkomulagi aðila á vinnumarkaði er slitið. Fundargerðir Þjóðhagsráðs verða öllum aðgengilegar.