Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Notendum fjárhagsaðstoðar fækkar hjá Reykjavíkurborg

$
0
0

„Notendum fjárhagsaðstoðar til framfærslu fækkaði á fyrstu þremur mánuðum þessa árs um tæp 24% samanborið við árið í fyrra, eða úr 1924 í 1469 manns. Heildarútgjöld Reykjavíkurborgar lækkuðu um ríflega 20% vegna fækkunarinnar,“ segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar.

Þá kemur fram að á síðustu árum hafi verið gripið til ráðstafana til að auka þjónustu við þá sem fá fjárhagsaðstoð til framfærslu, einkum þá sem eru atvinnulausir eða sjúklingar.

„Ráðstafanir þessar eru ýmist alfarið á hendi velferðarsviðs eða í samstarfi við aðrar stofnanir.  Má þar nefna að virkniráðgjafar voru ráðnir í upphafi árs 2010 til starfa á þjónustumiðstöðvum, Atvinnutorg opnaði í febrúar 2012, Stígur, þjónusta við atvinnuleitendur, var stofnaður í mars 2014, atvinnumáladeild var stofnuð hjá Reykjavíkurborg árið 2012, færniteymi með þjónustu fyrir óvinnufæra og matsteymið Velvirk hófu starfsemi árið 2014. Þá hefur verið lögð sérstök áhersla á þjónustu við ungt fólk og þá sem ljúka bótarétti sínum hjá Vinnumálastofnun.“

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283