Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Svavar Gestsson þakkar Morgunblaðinu fyrir að gleyma sér ekki

$
0
0

Svavar Gestsson„Nú liggur fyrir að Ríkisendurskoðandi telur að ástarbréf [Davíðs Oddssonar] voru margfalt dýrari en nokkurt Icesave. Morgunblaðið hefur ekki frètt af því og heldur ekki því að þrotabú Landsbankans borgaði Icesave og meira til,“ skrifar Svavar Gestsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Alþýðubandalagsins, á Facebook í morgun. Hann gerir grín að þráhyggjukenndri umfjöllun Morgunblaðsins og Davíðs Oddsssonar, ritstjóra blaðsins og frambjóðanda til forseta.

 

Auglýsing

Mogginn fjallar um Icesave

Í dag má einmitt finna enn eina umfjölunina um Davíð og Icesave. Meginstefið er að Davíð hafi gert allt rétt en að andstæðingar hans – í þann hóp falla þeir sem Davíð lýsir einhliða óvini sína – hafi gert allt rangt. Að vanda er Svavarssamningnum gert skil með þeim orðum að hann hafi jú verið sá versti. Mantra sem endurtekin hefur verið svo oft að hún hlýtur að vera sönn.

Morgunblaðinu er dreift frítt á heimili í dag. Umfjöllun blaðsins um Icesave og forsetavaldið er fremur augljóst yfirvarp fyrir Agnesi Bragadóttur, blaðakonu Morgunblaðsins, til að hlaða Davíð Oddsson ritstjóra blaðsins oflofi.

Auglýsing

„Það hefur alla tíð legið ljóst fyrir að Davíð var algjörlega andvígur því að íslenska þjóðin þyrfti að axla ábyrgð á Icesave-skuldbindingum Landsbankans. Fræg eru ummæli hans frá því í október 2008 þegar hann sagði að íslenska þjóðin ætti ekki að greiða skuldir óreiðumanna,“ skrifar Agnes. Frægu ummælin koma úr Kastljósviðtali og almennt er túlkunin á því viðtali nokkuð flóknari en að Davíð hafi staðið sig svo vel að frægt sé.

Agnes heldur áfram og endurtekur enn einu sinni áróður framboðs Davíðs Oddssonar um að Guðni hafi viljað samþykkja Icesave. „Davíð sagði að Svavarssamningurinn hefði verið sá versti sem gerður var í Icesavesamningalotunni og Guðni hafi mælt með samþykki hans og hann hafi rökstutt mál sitt með nákvæmlega sama hætti og Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon hafi gert, en nú væri Guðni að hlaupa frá áður sögðum orðum.“

Auglýsing

„Morgunblaðið virðist halda að ég sé í forsetaframboði; þar birtist heilsíða um mig í dag,“ skrifar Svavar á Facebook.  „Það er misskilningur að ég sé í framboði. Eins er það misskilningur að forseti Íslands muni á næsta kjörtímabili fást við Icesave; Landsbankinn er búinn að borga.“

Svavar líka með í gær

Svavar er reyndar ansi oft umfjöllunarefni Morgunblaðsins – því sem næst á hverjum degi. Þannig tók Svavar sig til og þakkaði Morgunblaðinu einnig í gær fyrir að ganga úr skugga um að hann gleymist ekki. „Þakkir, Þegar einstaklingur stígur út út framlínu pólitískrar baráttu vill hann gleymast. En það á ekki við um mig sem væri bara allt í lagi; en Morgunblaðið sér um það að halda nafni mínu á lofti,“ skrifar Svavar og bætir við að í blaði gærdagsins, sé að finna fjórar greinar um hann.

„Í dag birtast fjórar greinar um mig; ekki minningargreinar, nei. Tvær þeirra bersýnilega framleiddar á kosningaskrifstofunni við Grensásveg, ein af sérlegum pólitískum aðstoðarmanni mannsins sem má víst ekki nefna hér á netinu sem kallar sig annan aðalframbjóðandann og ein er skrifuð af upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar, já það er sá. Greinarnar eru reyndar ekki um mig beint, heldur um Guðna Th Jóhannesson frambjóðanda til embættis forseta Íslands. Nafn mitt er bara notað til að sverta hann. Þannig hefur þetta reyndar lengi verið fyrir kosningar.“

Mogginn með sínar aðferðir

Svavar segist sjálfur vanur aðferðum Morgunblaðsins þegar kemur að því að sverta fólk. „Í áratugi reyndi Morgunblaðið að sverta mig sem stjórnmálamann með því að tengja mig við ægilegustu glæpaverk Sovétstjórnarinnar. Árásir Morgunblaðsins á Guðna núna eru jafnvel nokkrum sinnum magnaðri en árásir sama blaðs á Ólaf Ragnar Grímsson formann Alþýðubandalagsins fyrir forsetakosningarnar 1996. Nú verður fróðlegt að sjá framhaldið; fyrir kosningarnar 1996 birti nánasta stuðningslið Morgunblaðsins nokkrar heilsíðuauglýsingar gegn Ólafi. Þær hjálpuðu Ólafi. En hvað gera þeir núna? “

Framboð Davíðs hlepti lífi í Morgunblaðið

„Það bagalega við Svavarssamningana er að þeir gengu upp að fullu, Landsbankinn borgaði allan Icesavepakkann og meira til. Kostnaðurinn við ástarbréf aðalframbjóðandans þegar hann var Seðlabankastjóri kostuðu þjóðarbúið margfalt meira en kostnaðurinn við Icesave sem Lansbankinn borgaði. Það segir Ríkisendurskoðandi. En Morgunblaðið spyr ekki um staðreyndir. Það var farið að róast aðeins að undanförnu Morgunblaðið fyrir forsetaframboðið mannsins. En nú rennur rógsfljótið fram eins og stórfljót í leysingum. Annað eins hefur ekki sést lengi; vísindamenn ættu að taka sýni úr subbuskapnum. Fljótið þurfti greinilega að fá að ryðja sig. Ég finn ekki fyrir því og þakka fyrir mig en ég efast um að þessi sóðaskapur styrki fylgi þess manns sem á að styrkja. En hvert verður framhaldið? Samherji borgar og borgar þannig að það er spennandi að sjá hvað gerist,“ skrifar Svavar að lokum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283