Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Gunna fótalausa

$
0
0

Á morgun þann 19. júní n.k. verður opnuð sýning og afhjúpaður minnisvarði um Guðrúnu Bjarnadóttur (1770-1859) í minjasafninu Kört í Trékyllisvík.

Sýningin ber yfirskriftina Gunna fótalausa en það viðurnefni fékk Guðrún 15 ára gömul þegar hún kól svo illa að taka varð neðan af báðum fótum hennar. Fötluðum ungum konum á 18. öld voru ekki margir vegir færir en Guðrún markaði sér sína eigin slóð. Hún lét kyn, fötlun og þjóðfélagsstöðu ekki aftra sér í að verða bátasmiður, bóndi og jarðeigandi í Árneshreppi. Guðrún var vel liðin og framsýn kona sem steig ölduna í lífsins ólgusjó af fádæma styrk.

Saga Guðrúnar verður að teljast einstök hvort sem horft er á hana út frá stöðu kvenna eða fatlaðra á hennar tíma.

Ævi Guðrúnar og störfum eru gerð skil í lítilli sýningu í minjasafninu Kört sem staðsett er í Trékyllisvík miðri. Í Kört er einnig hægt að kynna sér sögu svæðisins, versla handverk af heimamönnum eða setjast niður með rjúkandi kaffibolla í fallegu umhverfi. Safnið er opið alla daga í sumar frá 10 til 18.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283