Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Bréf til lesenda Kvennablaðsins 19. júní 2016

$
0
0

Í dag er 19. júní, dagur sem helgaður er kvenréttindum. Ég er búin að sitja við í morgun og lesa í Kvennablaðinu hennar langömmu minnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur sem ég á jafn lítið í og aðrir en eftir hana liggur mikið ævistarf. Í skrifum hennar má glögglega sjá hvaða konu hún hafði að geyma og í gegnum skrifin hennar hef ég kynnst henni talsvert.

Það er rauður þráður í gegnum öll hennar skrif hvað hún gleymir aldrei þeim verst stöddu, fátæku fólki, börnum og undirokuðum konum og hvernig blað hennar lýsir þeirri einlægu ósk hennar að konur eignist áhugamál, mennti sig, fyllist sjálfsvirðingu og geri kröfur til sín og annarra. Það er, í gegnum blaðið, augljós sá ásetningur Bríetar að fræða, skemmta, upplýsa og gera konur virkar og áhugasamar um stöðu sína, umhverfi sitt, þjóðmál – lífið sjálft!

Hún talar fyrir því, fyrir rúmum hundrað árum, að hjón skipti með sér verkum og auðvitað hefur þetta eitthvað lagast í tímans rás en ég þekki fjölda kvenna á mínum aldri og yngri sem kvarta yfir því að í lok vinnudags komi þær heim til að vinna öðru sinni fullan vinnudag. Sinna börnum og heimalærdómi, kaupa inn, elda og vaska upp, þvo þvotta og ganga frá. Það er árið 2016.

Enn eru konur að sinna flestum láglaunastörfum samfélagsins, þar eru t.d sjúkraliðar, kennarar, fóstrur, dagmömmur – manneskjurnar sem knýja þessi fjárans hjól atvinnulífsins áfram á skítalaunum og gera það að verkum að við getum mætt til vinnu vitandi að börnin okkar eru ekki í reiðileysi. Það er árið 2016.

Samfélagið er fullt af framakonum sem hugsa aðeins um að ná sömu völdum og karlmenn í sömu stöðum en hafa engan áhuga á að pæla í því að sjötug kona er að hrekjast úr landi vegna þess að ellilífeyririnn dugar ekki til að draga hér fram lífið, að margar einstæðar mæður geta ekki veitt börnum sínum nokkurn skapaðan hlut, að fátækt fólk hefur ekki efni á því að fara til læknis, leysa út lyf eða láta gera við tennurnar í sér. Það er árið 2016.

Ég hef lítinn skilning á konum sem vilja sífellt vera að leggja öðrum konum lífsreglurnar, segja þeim til, gera tilraunir til að hafa vit fyrir þeim, ofsækja þær fyrir lífsskoðanir sínar, hugsanir, útlit og framkomu. Það er lítið umburðarlyndið hér gagnvart konum sem kjósa ekki öruggar alfaraleiðir og þær eru hæddar, spottaðar og oft enn afgreiddar sem geðveikar. Það er árið 2016.

Ég fyrir mitt leyti er líka orðin drulluþreytt á framakonum í pólitík sem spila þennan karlaleik öllum stundum þar sem oft aðeins eitt kemst að – völd – völd og meiri völd og hossa sér svo á baráttufólki og fátæklingum á tyllidögum. Konum sem kvarta yfir því að vera ofsóttar fyrir það eitt að vera konur – fyrir að hlutirnir gangi ekki upp af því að þær eru konur – og koma svo illa fram við konur af öðru sauðahúsi sökum áhuga- og þekkingarleysis. Það er árið 2016.

Kvennablaðið er í dag vettvangur þeirra sem í það skrifa, ekki útvalinna og yfir 120.000 manns lesa það í viku hverri. Þar skrifar m.a. óskólagengið fólk, blaðamenn, hámenntað fólk, lesblindir, fólk sem hefur aldrei áður tjáð sig opinberlega, útlendingar, málfarsfasistar, öryrkjar, sjálfskipaðir betri borgarar, fólk með meiningar og fólk sem finnur til.

Blaðið hefur orðið til í þeirri mynd sem það er fyrir tilstilli allra þeirra sem hönd hafa lagt á plóginn og auðvitað er blaðið í bullandi stjórnarandstöðu. Sú ríkisstjórn sem hér ríkir sinnir ekkert um þá sem verst standa í samfélaginu. Og fjársterku miðlarnir sinna velgjörðarmönnum sínum af þrælsótta og miskunnarlausri undirgefni og fréttaflutningurinn á þeim bæjunum er eftir því. Bara ánægjuvogin, bullandi framfarir og góðæri!

Kvennablaðið er m.a. blað fyrir gagnrýnisraddirnar og þar fá þær að heyrast. Er það ekki hið besta mál? Það er nú einu sinni árið 2016.

En það er allrar athygli vert að langmest af þeirri neikvæðu og óuppbyggilegu gagnrýni sem þetta mikið lesna fréttablað fyrir konur fær – er frá konum.

Konum sem gagnrýna óheflaðar konur og konur sem hafa aðrar skoðanir en þær sjálfar. Langskólagengnar konur gagnrýna konur sem eru ekki að þeirra viti nægilega vel máli farnar en líka þær sem eru rökfastari og slyngari en andskotinn af því að þær fyrrnenfndu vilja bara ekki að skrifað sé um hlutina á þann veg – það er þeim á móti skapi. Konur gagnrýna fréttaflutning um konur ef hann er ekki konum í hag. Hægrikonur gagnrýna Kvennablaðið fyrir að vera of róttækt og vinstrisinnað – ekki vilja þær skrifa í blaðið – liggur þeim ekkert á hjarta? Vilja þær ekkert breyta heiminum til hins betra fyrir alla? Virkar púðalífið í Garðabænum bara eins og svefntafla á mannskapinn?

Hvar er víðsýnin, umburðarlyndið og skilningurinn á því að við erum allar ólíkar? Hvar er skilningurinn á því að í tjáningu þeirra sem minna mega sín er frelsið, skilningurinn, umburðarlyndið og breytingin sem til þarf svo samfélagið verði okkur öllum betra?

Í hvernig veröld viljum við konur búa? Það er árið 2016.

Kvennablaðið hefur alltaf staðið öllum opið og það skal tekið fram að heiftúðugustu andstæðingum blaðsins, sem eru jú konur, stendur það til boða að skrifa í það nú sem áður. Það er arfavitlaust að hafna því tilboði vegna yfirlætis og vanþóknunar á efni blaðsins eða vegna þess að það sé bara best að skrifa á þeim vettvangi þar sem maður uppsker lófatak þeirra sem maður veit fyrirfram að eru manni sammála.

Ef þið úrtölukonur viljið breyta Kvennablaðinu – þá skuluð þið bara skrifa í það! Kvennablaðið er ykkar blað ef þið þorið og viljið! Þið getið það! Konur mega skrifa í blöð! Það er árið 2016!

Það er 19. júní árið 2016!

Ég er stolt af því að reka þetta blað í minningu langömmu minnar, ég er stolt af öllu því frábæra fólki sem starfar með okkur Soffíu að frjálsri og óháðri fjölmiðlun og öllum þeim sem hafa skrifað greinar í það, – ég er stolt af því að í Kvennablaðið skrifar allskonar fólk sem ekki fær birt eftir sig efni annarsstaðar, sem enginn annar veitir nokkurn áhuga og ég er stolt af því að reka fréttamiðil sem ríflega þriðjungur þjóðarinnar les í viku hverri og þar af í yfirgnæfandi meirihluta konur.

Til hamingju með daginn, konur!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283