Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Al Jazeera fjallar um málefni Eze Okafor og skort íslenska ríkisins á mannúð

$
0
0

„Ísland vísar nígerísku fórnarlambi Boko Haram úr landi,“ segir í fyrirsögn fréttar hjá Al Jazeera sem birtist í morgun. Sagðar eru sögur flóttafólks í tilefni World Refuge Day, alþjóðlegs dags flóttamanna. Þar á meðal er frétt af Eze Okafor frá Nígeríu sem vísað var úr landi fyrir skömmu.

„Ísland er orðið heimili mitt,“ segir Eze við blaðamenn Al Jazeera sem hittu hann í Svíþjóð. „Ég hef lagt mitt af mörkum þar og þekki orðið marga. Vinir mínir á Íslandi eru fjölskylda mín.“ Eze flúði Nígeríu vegna ófsókna af hálfu Boko Haram. Árið 2010 varð hann ásamt yngri bróður sínum fyrir árás hópsins. Eze segir við Al Jazeera að hópurinn hafi krafist þess að hann gengi til liðs við þá.

Árið 2012 sótti hann um hæli á Íslandi en var neitað. Hann sótti þá um landvistarleyfi af mannúðarástæðum. Í október fékk hann tímabundna heimild til atvinnu og landvistar. Þrátt fyrir það var honum skömmu síðar vísað úr landi með litlum fyrirvara án pappíra og fjárhagsaðstoðar til að lifa.

Ítarlega er fjallað um mál Eze og það hvernig Ísland notfærir sér Dyflinnarreglugerðina til að losa sig við hælisleitendur. Frétt Al Jazeera má lesa hér.

Eze grátbað um að vera ekki sendur úr landi eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi sem tekið var á Keflavíkurflugvelli við brottvísun hans.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283