Hópur sem kallar sig París 1.5 hefur birt viðtöl við tvo forsetaframbjóðendur þar sem spurt er út i afstöðu þeirra til loftlagsbreytinga, hvernig Ísland leggi sitt af mörkum og hvert hlutverk forseta eigi að vera í baráttunni gegn loftlagsbreytingum. Hópurinn hafði samband við fimm efstu frambjóðendur en aðeins Andri Snær Magnason og Halla Tómasdóttir urðu við boðinu.
„Einungis tveir forsetaframbjóðendur eða kosningastjórar/fjölmiðlafulltrúar gáfu kost á viðtali við fulltrúa París 1,5 um loftslagsmálin. Þeir voru Halla Tómasdóttir og Andri Snær Magnason. Engin svör bárust frá Davíð Oddssyni eða fjölmiðlafulltrúum þaðan. Fjölmiðlafulltrúi Guðna sagði hann ekki hafa tíma og Sturla Jónsson ætlaði að hafa samband aftur en stóð ekki við það,“ segir í tilkynningu hópsins.
Viðtal við Andra Snæ Magnason
Andri Snær Magnason from Eythor Edvardsson on Vimeo.
Viðtal við Höllu Tómasdóttur
Halla Tómasdóttir from Eythor Edvardsson on Vimeo.