Ríkisútvarpið býður upp á kappræður með forsetaframbjóðendum á föstudaginn kemur, daginn fyrir kosningar. Þættinum verður skipt í 2 hluta. Í fyrri hluta koma fram þeir frambjóðendur sem mestan stuðning hafa hlotið í skoðanakönnunum og í síðari helming þeir sem minna fylgi hafa samkvæmt könnunum. Við biðjum ykkur um að taka þátt í smá skoðanakönnun vegna þessa.
Fyrirkomulag þáttarins hefur fyrirfram verið gagnrýnt m.a. af Merði Árnasyni sem á sæti í stjórn RÚV sem sagði í pistli á Eyjunni:
„Ríkisútvarpið hefur sem almannaútvarp ákveðnar lýðræðislegar skyldur. Það má meðal annars ekki gera frambjóðendum mishátt undir höfði en það á líka að gera áhorfendum og hlustendum grein fyrir framboðunum, því sem er í húfi og gangi mála í kosningabaráttunni.
Þetta hyggst kosningaritstjórnin nú leysa með því að fyrst séu allir frambjóðendur jafnir fram á síðasta dag. Kvöldið fyrir kosningar á svo að skipta –undir gunnfánum djúprar og innihaldsríkrar umræðu og betri þjónustu við almenning,. Sem ekki yrði af ef allir níu væru saman í lokaþætti ‒ eða ef skipting þeirra væri með öðru móti en eftir skoðanakönnun.“
En hvað finnst ykkur um þetta?
Hér er könnunin – Takið endilega þátt!