Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Mun átak nægja til að stytta biðtíma eftir aðgerðum

$
0
0

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra undirritaði í dag samninga við fjórar heilbrigðisstofnanir um þátttöku í átaki til að stytta bið sjúklinga eftir brýnum aðgerðum. Áformað er að verja 1663 milljónum króna til verkefnisins á árinu 2016.

Samningarnir eru við Landspítalann (LSH), Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk), Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVe) og fyrirtækið Sjónlag hf.

Ráðast á í að stytta bið fólks eftir liðskiptaaðgerðum, hjartaþræðingum og augasteinsaðgerðum: „Við stígum hér enn eitt stórt skref sem miðar að því að bæta þjónustu við sjúklinga, auka lífsgæði fólks og styrkja heilbrigðiskerfið,“ er haft eftir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra í tilkynningu ráðuneytisins.

„Nú tökumst við á við biðlistana með það að markmiði að hámarksbið eftir aðgerð verði ekki lengri en 90 dagar.“

Bið sjúklinga hefur aukist í tíð Kristjáns þórs og jókst verulega í fyrravetur vegna getuleysi ríkisstjórnar til samninga við launafólk. Á grundvelli upplýsinga frá embætti landlæknis um fjölgun á biðlistum lagði heilbrigðisráðherra fyrir ríkisstjórn áætlun um aðgerðir.

„Byggt var á tillögum landlæknis þar sem horft var til biðtíma og áhættu sem leiðir af bið eftir aðgerð. Niðurstaðan varð sú að ráðast í aðgerðir til að stytta bið eftir augasteinsaðgerðum, gerviliðaaðgerðum á hné og á mjöðm og hjartaþræðingu.“

Vonast er til að í lok átaksins þurfi sjúklingar ekki að bíða lengur en þrjá mánuði eftir aðgerð.

Embætti landlæknis hefur verið falið að efla umgjörð um biðlista þannig að ávallt liggi fyrir upplýsingar um biðtíma og fjölda þeirra sem bíða, í stað þess að taka þessar upplýsingar saman á þriggja mánaða fresti.

Aðgerðaráætlunin er sem hér segir:

Liðskiptaaðgerðum fjölgað um 530

Á grundvelli fjárlaga áætla LSH, SAk og HVe að framkvæma 1.010 liðskiptaaðgerðir (hné og mjaðmir) á þessu ári. Með átakinu bætast við 530 aðgerðir (52% aukning). Nú bíða 1.336 sjúklingar eftir liðskiptaaðgerð.

Augasteinsaðgerðum fjölgað um 2.890
Á grundvelli fastra fjárveitinga til stofnana ríkisins er áætlað að framkvæma 1.020 augasteinsaðgerðir á LSH og SAk, auk 800 aðgerða á ári samkvæmt samningum við einkaaðila. Með átakinu sem samningarnir taka til bætast við 2.890 aðgerðir (159% aukning). Samkvæmt nýjustu upplýsingum bíða nú 3.839 eftir augasteinsaðgerð.

Hjartaþræðingum fjölgað um 50
Á grundvelli fjárlaga er áætlað að framkvæma 1.725 hjartaþræðingar á Landspítala en með átakinu verður þeim fjölgað um 50 (3% aukning). Landspítalanum hefur tekist að stytta verulega bið eftir hjartaþræðingu á síðustu misserum. Í október 2014 biðu 274 eftir aðgerð, 171 í október 2015, en á biðlista í janúar sl. voru 92 einstaklingar. Ljóst er að með þessu átaki mun á þessu ári takast að tryggja öllum sjúklingum sem bíða eftir hjartaþræðingu aðgerð innan þriggja mánaða.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283