Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Umdeild hundakjötshátíð í Kína

$
0
0

Árleg hundakjötátshátíð fer nú fram í borginni Yulinborg í Kína. Hátíðin er gríðarlega umdeild utan Kína og innan en BBC greinir frá því að ellefu milljónir manns hafi undirritað kröfu gegn viðburðinum. Samkvæmt frétt BBC er búist við að um tíu þúsund hundum verði slátrað þá tíu daga sem hátíðin er í gangi. Borgaryfirvöld í Yulin segja hátíðina ekki á vegum yfirvalda heldur um sé um að ræða hátíð á vegum einkafyrirtækis.

Margra alda hefð fyrir hundaáti

Hundaát á sér fimm hundruð ára sögu í Kína, Kóreu og löndum þar í kring. Yulin hátíðin er þó aðeins nokkra ára gömul og var fyrst haldin 2009. Kína skorar almennt ekki hátt þegar kemur að velferð dýra en hundaát vekur almennt sérstaka reiði á vesturlöndum þar sem hundar eru gæludýr en ekki búfénaður.

BBC hefur eftir íbúum og seljendum á hátíðinni að dýrunum sé slátrað með siðlegum og mannúðlegum aðferðum. Dýravelferðarsinnar hafa þó gagnrýnt hátíðina fyrir aðferðir við slátrun dýranna sem feli meðal annars í sér að dýrin séu barin til dauða. Þá eru sögur um hunda sem hafi verið eldaðir lifandi. Kínverskir dýraverndunarsinnar haf birt myndir af hundum með ólar um háls og ýjað að því að sökum stærðar hátíðarinnar og þess gríðarlega magns hunda sem þurfi til að fæða gesti sé algengt að gæludýrum sé rænt og þau nýtt til matar.

Hundakjötréttur, takið eftir því að hali af hund er notuð sem skraut.

Hundakjötréttur, takið eftir því að hali af hundi er notaður sem skraut.

Umdeilt í Kína

Sala hundakjöts er lögleg í Kína og árlega er um tíu milljónum hunda slátrað til matar. Ríkisfréttastofan Xinhua birti nýlega niðurstöðu skoðunarkönnunar sem framkvæmd var í Kína. Á niðurstöðum könnunarinnar má sjá að 64% fólks á aldrinu 16 – 50 ára styðja bann á Hundakjötátshátíðinni. Tæplega 52% segjast styðja bann við sölu hundakjöts og tæplega 70% segjast aldrei hafa bragðað hundakjöt.

Sjá einnig: Birgitta berst gegn fríverslunarsamningi við Kína

„Það er óþægilegt að fólk utan Kína trúir því að þessi grimmilega Yulin hundakjötátshátíð sé hluti af kínverskri menningu,“ segir Qin Ziaona, forstjóri dýraverndunarsamtaka í Kína. Ziaona segir hundaát ekki vera hluti af meginstraumsmenningu landsins. Samtök sem kalla sig Humane Society International nýta krafta sína í að frelsa hunda úr sláturhúsum. Samtökunum tókst þannig að frelsa tuttugu hunda úr sláturhúsi daginn áður en hátíðin hófst.

Greina má kynslóðabil í afstöðu til hundaáts. Þannig virðist ungt fólk almennt ekki jafn hrifið af hundakjötsneyslu en þau eldri. Notendur samfélagsmiðilsins Weibo, sem er einskonar Twitter í Kína, virðast þannig almennt ekki mjög hrifnir.

Mótmæli dýraverndunarsinna hafa ekki orðið til þess að hátíðin var slegin af og raunar hefur BBC eftir nokkrum seljendum að athyglin hafi orðið til þess að auka áhugann. Hins vegar hafa borgaryfirvöld lagt nokkuð á sig við að koma þeim boðum á framfæri að hátíðin sé ekki á vegum yfirvalda. Þá hafa borgaryfirvöld óskað þess að opinerir starfsmenn láti framhjá fara að mæta til hátíðarinnar.

Kínverska sendiráðið í London hefur ekki farið varhluta af gagnrýni vegna málsins. Facebook síða sendiráðsins er hlaðin athugasemdum frá ósáttum netverjum sem vilja að hátíðin verði bönnuð.

Sjá einnig: Kínverjar neita sölu á mannakjöti til Afríku

Hræsni vesturlandabúa

Heimspekingurinn Julian Baggini skrifaði skoðanapistil um Yulin hátíðina sem birt var á vef CNN. Fyrirsögnin er Kínverska hundakjötshátíðin: Er það svo slæmt að borða hunda? Í greininni segir hann að enn og aftur fari hin árlega reiðibyglja um heiminn vegna hátíðarinnar. Í kjölfarið fylgi umræða um dýravelferð þar sem Kína sé í fókus.

Á vesturlöndum skiptist umræðan í grófum dráttum í tvennt; þá sem gagnrýni hatíðina harkalega og þá sem sjái einskonar menningarlega heimsvaldastefnu í afstöðu vesturlandabúa gegn hundaáti. Baggini bendir á að bæði sjónarmið geti átt rétt á sér. Þegar kemur að hundaáti sé það til dæmis algeng trú að kjötið sé bragðbetra ef kvöl fylgi slátrunninni.

Baggini kallar gagnrýni sem snýr að því einu að rangt sé að borða hundakjöt eigi rót sína að rekja í sýn okkar á hunda sem gæludýr. „Slík gagnrýni á rétt á sér þegar hún kemur frá fólki sem eru vegan og tekur því ekki þátt í ósiðlegri framkomu við svín, lömb og kýr.“ Hann segir gagnrýni sem byggi á þeirri hugsun að rangt sé að borða hunda vegna þess að þeir eru hundar einfaldlega vera hræsni, komi sú gagnrýni frá fólki sem með glöðu geði snæði svín úr stórbúum. Sama eigi við um grænmetisætur sem neyti mjólkuvöru frá stórbúum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283