Margrét Gauja Magnúsdóttir skrifar:
Undanfarin tvö ár hef ég kynnst á eigin skinni hve djúp sú gjá er á milli þeirra sem búa á höfuðborgarsvæðinu og þeirra sem búa úti á landi. Gjáin er ekki eingöngu falin í mun á tækifærum, þjónustu og samgöngum heldur er hún einnig sálræn, gengur á báða bóga, og felst í viðhorfinu „við og þið“.
Ég tók því ákvörðun snemma að bíða eftir að fram stígi forsetaframbjóðandi sem bæri með sér upplifunina „við“. Ég hef verið starfandi í stjórnmálum lengi og þekki vel þetta viðhorf„við og þið“ og mér leiðist það orðið mjög. Hjá þjóð sem telur ekki fleiri en 330.000 manns hljótum við að geta sameinast um eitthvað jákvætt, annað en landsliðin okkar í boltaíþróttum.
Og fram steig Guðni Th. Jóhannesson.
Ég lagði vel við hlustir hér á Höfn í Hornafirði og fann það. Þarna var það loksins komið. Ótrúlegasta fólk, úr öllum áttum, fólk sem ég á ekkert sameiginlegt með á neinn hátt, en þarna var það.
Við vorum sammála um að þarna væri einstaklingur sem okkur fannst frábær og myndi fara vel með forsetaembættið.
Stundum þarf ekki meira til.
Guðni Th. er ekki eingöngu vel menntaður og vel að máli farinn. Hann hefur fallega sýn á embættið og síðast en ekki síst hefur hann jákvæða framtíðarsýn á okkur sem þjóð og það er kærkomið.
Ég upplifi að Guðni Th. verði þetta leiðarljós í umræðunni um hvert við sem þjóð viljum stefna til framtíðar. Guðni Th. mun beita sér fyrir að vera „stikkfrí“ svæðið í löggu og bófa leiknum, leiða málin til lykta og aðstoða okkur í harðri umræðu við að vera málefnaleg og jákvæð.
Guðni Th. mun aðstoða okkur að finna lausnirnar með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. Hann er sniðugur í að finna punkta í umræðu sem gleymist oft, kemur með athugasemdir eins og góðum kennara sæmir og stýrir þannig umræðum inn á jákvæðar brautir.
Guðni Th. er venjulegur maður, fimm barna faðir, í sama baslinu og við hin og hefur því ákveðinn skilning og innsæi inn í daglegt hversdagslíf. Guðni Th. verður frábær forseti okkar allra, hvort sem við kjósum hann eða ekki.