Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Konur á verri kjörum allt sitt líf

$
0
0

ThorunnsveinbjarnarFormaður Bandalags háskólamanna ætlar að leita skýringa hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og ríki á kynbundnum launamuni félagsmanna sem starfa hjá ríkinu. Í nýrri könnun BHM á kynbundnum launamun meðal félagsmanna kemur fram að 11.7% munur er á launum kynjanna árið 2015. Bilið hefur aukist milli ára. Óleiðréttur launamunur er 18%.

„Það sem veldur mestum vonbrigðum er að launamunur kynjanna er að aukast en ekki að minnka, og þá erum við að tala um leiðréttan launamun,“ segir Þórunn Sveinbjarnadóttir, formaður BHM í samtali við Vísi.

Sjá einnig: 11,7% kynbundinn launamunur innan BHM – Óleiðréttur launamunur er 18%

Sambærileg könnun sem var gerð í fyrra sýndi að kynbundinn launamunur var 9,4 prósent. „Ekki síður þarf að skoða óleiðréttan launamun sem er rétt tæplega 18 prósent, hann segir okkur meiri sögu um stöðu karla og kvenna á vinnumarkaði. Þessi niðurstaða könnunar okkar veldur okkur miklum vonbrigðum,“ segir Þórunn í umfjöllun Vísis.

„Þetta er kerfisvandi og hér eru stærstu vinnuveitendur á landinu, ríki og önnur sveitarfélög en Reykjavík, ekki að standa sig þegar kemur að því að meta fólk til starfa eða meta framgang í starfi. Það er skoðunarefni. Umfang vandans er það mikið að við erum að tala um mannréttindabrot. Þetta eru brot á lögum og það verður að taka á þeim á öllum vinnumarkaðnum,“ segir formaður BHM. Hún bendir á að konur séu á verri kjörum alla ævi og það sé vandamál fyrir allt samfélagið.

Lesa má umfjöllun Vísis hér.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283