Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Landsmönnum fjölgaði um prósentustig árið 2015

$
0
0

Íbúafjöldi Íslands var 332.529 fyrsta dag ársins 2016. Samkvæmt tölum Hagstofunnar er það 1% fjölgun frá 1. janúar árið 2015 eða samtals 3.429 einstaklingar.

Árið 2015 fæddust 4.129 börn en 2.178 manns létust. Fæddir umfram dána voru því 1.951. Þá fluttust 6.010 utan en 7.461 til landsins. Aðfluttir umfram brottflutta voru því 1.451 árið 2015.

Í upphafi árs 2016 var 61 þéttbýlisstaður á landinu með 200 íbúa eða fleiri. Auk þeirra voru 35 smærri byggðakjarnar með 50–199 íbúa. Alls bjuggu 311.850 í þéttbýli 1. janúar síðastliðinn og hafði þá fjölgað um 3.335 frá sama tíma ári fyrr. Í dreifbýli og smærri byggðakjörnum bjuggu alls 20.679.

Fjölmennasta sveitarfélagið var Reykjavík með 122.460 íbúa. Það fámennasta var hins vegar Skorradalshreppur þar sem bjuggu 53 íbúar. Árið 2015 fækkaði fólki í 30 sveitarfélögum og á þremur landsvæðum af átta.

Erlendir ríkisborgarar voru 26.485 hinn 1. janúar 2016 og af þeim voru Pólverjar langfjölmennastir. Alls höfðu 12.067 einstaklingar pólskt ríkisfang eða 46,6% allra erlendra ríkisborgara. Alls voru 42.024 landsmanna árið 2015 fæddir erlendis (20.827 karlar og 21.197 konur) eða 12,6% mannfjöldans, fleiri en nokkru sinni.

Aðalmynd birt með góðfúslegu leyfi Heiðu Halls.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283