Hörður Ágústsson skrifar:
Á tímum fyrirsagna, snappa, smáskilaboða og tísta virðist því miður hafa myndast töluvert óþol í samfélaginu fyrir innihaldi og hugsjónum. Dægurflugur koma og fara og stjörnur dagsins í dag eru gleymdar öllum í næstu viku. Baráttan í kringum forsetakosningarnar er mjög lituð af þessu. Á síðustu tveimur mánuðum eða svo hafa sveiflurnar á fylgi og spútníkum verið slíkar að yfirborðsmennskan hefur náð nýjum hæðum.
Í skoðanakönnunum hefur þannig einn frambjóðandi haft talsvert forskot síðustu vikurnar. Hann er skilgetið afkvæmi skyndisamfélagsins. Hann var óþekktur í mars en á allra vitorði í apríl. Hann stendur fyrir ekkert sérstakt en öllum virðist líka við hann. Hann er góður fræðimaður, alveg ágætis náungi og virðist ná að sameina íhaldsmenn í öllum flokkum. Og í kringum sig hefur hann öfluga maskínu til að matreiða þessa naglasúpu afstöðuleysisins.
Forseti Íslands á ekki að vera lægsti samnefnarinn í öllum málum. Hann getur ekki verið jafnaðarmaður, samvinnumaður og einstaklingshyggjumaður allt í senn. Hann getur ekki talað fyrir því að við nýtum náttúruna og njótum hennar á sama tíma. Hann getur ekki tekið til á tjaldstæðum og flokkað rusl og haldið því fram að með því séum við orðin stikkfrí í loftslagsmálunum. Við skulum hafa það í huga að 20. öldin er liðin og það eru nýir tímar í vændum.
Sá frambjóðandi sem stendur uppúr í umræðunni, sá sem kemur fram með bæði dýpt og þunga, er Andri Snær Magnason rithöfundur. Síðastliðna tvo áratugi hefur hann barist fyrir náttúruna; lagt fram hugmyndir á sviði nýsköpunar; borið hróður Íslands á erlendri grundu; talað við yfir 20 þúsund skólabörn; skipulagt viðburði og skrifað bækur sem þýddar hafa verið á yfir 30 tungumálum. Hann hefur skýra sýn og kosning hans yrði lyftistöng fyrir annars laskaðan orðstír Íslands.
Ég biðla til þeirra sem hugnast innihald og málstaður frekar en yfirborðsmennska að horfa til framtíðar þegar þeir velja forsetaefni sitt í kjörklefanum. Það er birta yfir Andra Snæ Magnasyni og ferskleiki sem við sem þjóð þörfnumst svo sárlega. Hann er forseti 21. aldarinnar.