Ástþór Magnússon deilir á Youtube myndbandi þar sem má heyra og sjá Davíð Oddsson á fundi með stuðningsmönnum sínum þann 22. júní s.l. henda gaman að hörmungum Íraksstríðsins, aðild sinni og því gríðarlega mannfalli sem stríðið olli.
Davíð skopast að tölu látinna og stuðningsmennirnir veltast um af hlátri.
Davíð notar tækifærið og gerir lítið úr því að Ástþór hefur ítrekað minnt Davíð á þá staðreynd að Davíð, þá forsætisráðherra, og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra settu Ísland á lista hinna viljugu þjóða með því að vera meðal fyrstu ríkja til að styðja innrás Bandaríkjanna inn í Írak. Halldór Ásgrímsson er nú látinn.
Sjá einnig: Þakklæti til Davíðs Oddssonar
Davíð Oddsson hefur aldrei beðið okkur Íslendinga afsökunar á því að hafa með þjónkun sinni við stríðsstefnu Bandaríkjanna tekið fram fyrir hendurnar á Alþingi, lýðræðinu í landinu, og gert okkur meðsek í þeim hryllilegu stríðsglæpum sem George W. Bush og Dick Cheney bera ábyrgð á og þar með sett okkur á lista hinna viljugu þjóða.
Sjá einnig: Furðulegur fasteignasali
Davíð Oddsson gerir grín að aðild sinni í Íraksstríðinu
Tomas Young er bandarískur hermaður fæddur 1979 sem barðist í Írak og birti opið bréf til George W. Bush og Dick Cheney í mars 2013. Tomas barðist í Írak árin 2001-2004 eða þar til hann helsærðist og lamaðist. Hann hefur síðan helgað líf sitt baráttu gegn stríðsrekstri. Hér má lesa bréf hans.
Sjá einnig: Og þúsund ár, Davíð, ei meir