Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Eru fjöldamorð aðhlátursefni íslensku þjóðarinnar?

$
0
0

Ástþór Magnússon skrifar:

Það óhugnarlegasta sem ég hef séð í kosningabaráttunni er þegar Davíð Oddsson, maðurinn sem setti íslensku þjóðina á lista hinna viljugu til stríðsglæpa í Írak, gerði fjöldamorðin sem fylgdu í kjölfarið að aðhlátursefni á framboðsfundi sínum í gærkveldi.

Ég hef persónulega horft uppá fólk deyja fyrir framan mig eftir stríðsátök. Slík lífsreynsla gleymist aldrei og er svo sannarlega ekki aðhlátursefni.

Það er sorglegt ef íslenska þjóðin er svo veruleikafirrt að hún flykki sér á bakvið frambjóðendur sem ætla sér að styðja áframhaldandi stríðsbrölt bandaríkjanna. Þeir tveir sem fjölmiðlar hafa kynnt til leiks sem efsta í skoðanakönnunum eru báðir gerðir út af valdaklíkum bakvið Sjálfstæðisflokkinn.

Báðir hafa þeir farið undan í flæmingi þegar ég hef skorað á þá að mæta mér augliti til auglitis í fjölmiðli og í sameiginlegum fundum með frambjóðendum reyna þáttastjórnendur að þagga niður alla málefnalega umræðu um þessi mál.

Þjóðin mun auðvitað á endanum uppskera eins og hún sáir næstkomandi laugardag. Guð blessi Ísland.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283