Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Og þúsund ár, Davíð ei meir

$
0
0

Þegar Davíð Oddsson tilkynnti um forsetaframboð sitt varð ég ekki vitund undrandi. Það er nánast náttúrulögmál að maður sem hefur gegnt svo mörgum embættisstörfum líti svo á að forsetastóllinn sé bara eðlilegur lokasess.

Ég er nú einu sinni alin þannig upp að maður eigi að bera virðingu fyrir sér eldra fólki og ég hef líka margreynt það að fólk mildast með árunum, ýmsir skapbrestir láta undan síga, fólk verður umburðarlyndara, leggur sig fram við að breyta rétt, leggur af andspyrnuhegðun, ofstopa og vill frið og sátt.

Ég sá fyrir mér strategíu Davíðs sem hefði kannski getað borið hann inn á Bessastaði ef hún hefði verið á þann hátt sem ég gerði mér í hugarlund, sem var einhvernveginn svona:

Davíð stígur fram og bjargar þjóðinni undan þrásetu Ólafs Ragnars Grímssonar. Davíð stígur fram eftir 10 ára ónáð sem gamalreyndur og bljúgur maður sem hefur mildast með árunum og er ekki orðinn neitt nema auðmýktin og ‘skemmtilegheitin’.

Davíð er kurteis og elskulegur við alla sem hann hittir, iðrast yfir þeim verkum sínum sem flestir telja honum lítt til tekna, reytir af sér ‘brandara’, gerir grín að sjálfum sér og verður hvers manns hugljúfi.

Davíð er gamall og góður afi. Davíð verður forseti.

Það fór nú aldeilis ekki á þann veginn. Og illa mislas ég Davíð.

Auglýsing

Davíð kom fram með fantaskap strax á fyrstu dögum, reiddist þegar honum var ekki sýnd skilyrðislaus virðing, sagði neðanmittisbrandara, réðst að öðrum forsetaefnum með offorsi, háði og rangfærslum og varð sjálfum sér algerlega til skammar.

Mér finnst sorglegt að sjá gamalt fólk verða að gjalti.

Davíð kann ekki á áttavita. Hann skilur ekki samtímann. Hann skilur ekki að hér býr fólk á öllum aldri sem finnst ekkert til hans koma. Að mörgu samtímafólki hans finnst að þrátt fyrir embættisstörf hans eigi hann enga virðingu skilið. Að það er bara þéttriðna en fámenna stuðningsnetið sem er undirgefið og í sérstökum kúgunartengslum við hann sem ógnarstjórnanda, sem lítur upp til hans.

Davíð á Snapchat, Instagram og á öðrum samfélagsmiðlum er sorgleg tilraun til samtals við unga kjósendur sem sjá bara gamlan mann veltast áfram með ónýta göngugrind. Samtal Davíðs við stuðningsmenn sína þann 22. júní sl. þar sem hann gerir grín að Íraksstríðinu segir okkur allt sem segja þarf. Davíð Oddsson vílar ekki fyrir sér að hæðast að manntjóni og stríðshörmungum.

Ég óska Davíð Oddssyni einskis ills enda veit ég fyrir víst að hann verður aldrei forseti. Og á því ber hann einn ábyrgð.

Og þúsund ár, Davíð ei meir!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283