Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Andri Snær hefur reynsluna

$
0
0

Guðrún Helgadóttir skrifar:

Land, þjóð og tunga er aleiga okkar, ofar öllu. Hana ber forsetanum okkar að annast af ást og alúð, framar öllu öðru. Til þess þarf mikla reynslu.

Andri Snær hefur reynsluna. Hann hefur sýnt ást sína á landinu okkar í verki, hann hefur í bókum sínum deilt hugsunum með börnum jafnt sem fullorðnum og hann hefur sýnt einlægan vilja til að rækta íslenska tungu.

Þess vegna vil ég fá Andra Snæ og hans fallegu fjölskyldu á Bessastaði. Áfram Ísland!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283