Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Öruggur sigur Guðna

$
0
0

Margir virðast telja að lítið hafi skilið á milli Guðna Th Jóhannessonar og Höllu Tómasdóttur í forsetakosningunum. Jafnvel svo lítið að Halla hafi ekki þurft nema nokkra daga í viðbót til að vinna þann mun upp.

En þetta stenst enga skoðun.

Í fyrsta lagi þá tilkynnti Halla um framboð sitt tæpum þrem vikum á undan Guðna og hafði því talsvert forskot á hann hvað það varðar sem nýttist henni ekki.

Í öðru lagi þá fékk Halla um 20 þúsund atkvæðum færri en Guðni í kosningunum.

Í þriðja lagi þá hefði hún þurft að bæta við sig um 40% fylgi til að ná Guðna að því gefnu að hann stæði í stað á meðan.

Sigur Guðna Th Jóhannessonar var því mjög öruggur þó hann yrði ekki jafnt stór og spáð hafði verið.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283