Fyrr á öldum þekktist að um kirkjur og helga staði giltu lög sem tryggðu friðhelgi og grið, þeim sem þar leituðu skjóls gegn framgöngu valdhafa.
Í nótt, aðfaranótt þriðjudags 28. júní, verða Ali Nasir og Majed, hælisleitendur frá Írak, sendir frá Íslandi til Noregs. Þrátt fyrir alþjóðlegt samkomulag um að senda flóttafólk ekki til baka til heimalands síns, sendir Noregur flóttafólk frá suðurhluta Íraks til baka, með þeim rökstuðningi að þeim sé ekki hætta búin þar. Sú stefna er vel kunn Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála.
Sjá einnig: Myrkraverk Útlendingastofnunar náðust á myndband
Þess vegna verður Laugarneskirkja opin þessum mönnum í nótt, í von um að fornar venjur um kirkjugrið geti reynst tæki til að knýja yfirvöld til að taka ábyrga, efnislega afstöðu til málefna einstakra hælisleitenda. Með því að standa í kirkjurýminu með Ali Nasir og Majed, þegar lögreglan sækir þá, viljum við tjá samstöðu með þeim og áhyggjur okkar yfir aðgerðarleysi íslenskra yfirvalda í málefnum einstakra hælisleitenda.
Sjá einnig: Útlendingastofnun synjaði 80% hælisumsókna sem stofnunin tók til efnismeðferðar í maí
Kirkjan opnar klukkan 04:00 og þau sem vilja mega standa við altarið, lesa úr ritningunni, fara með bænir eða eiga samtal. Þegar lögreglan kemur að sækja mennina til að vísa þeim úr landi, sækir hún þá upp til altarisins. Lögreglunni verður mætt með virðingu og án viðspyrnu og verður henni gerð grein fyrir því hvaða merkingu þessi tiltekni staður hefur þegar kemur að mannhelgi og griðum.
Í Guðs friði,
Kristín Þórunn Tómasdóttir, sóknarprestur Laugarneskirkju
Toshiki Toma, prestur innflytjenda