Að lykkja saman er eitthvað sem margir eiga í vandræðum með í prjóni en er að mínu mati nauðsynlegt að kunna. Bæði nýtist það vel þegar á t.d. að lykkja saman undir höndum og svo er hægt að nota þessa aðferð til að stoppa í gat á peysu svo eitthvað sé nefnt.
Mörgum finnst gott að notast við myndrænar skýringar og eru þær margar í þessu tilfelli. Hvert skref er útskýrt í máli og myndum og bind ég miklar vonir við að þetta hjálpi þér og verði til þess að þú náir tökum á þessu.
Öll þessi skref eru tekin upp úr bókinni minni Geymt en ekki gleymt , sem ég gaf út rétt fyrir jól. Í henni er heill kafli þar sem ég tek fyrir ýmiskonar frágang.
Ég bjó til möntru um þetta þegar ég skrifaði bókina og er hún svo hljóðandi:
1X – Fremri brugðið, hafðu á. Aftari slétt, hafðu á.
(Svo)
- Fremri slétt, taktu af
- Fremri brugðið, hafðu á
- Aftari brugðið, taktu af
- Aftari slétt, hafðu á
og svo aftur og aftur og aftur og . . .
Ef þig langar að panta bókina mína þá getur þú sent mér póst hér.
Mundu svo að heilsa upp á mig með því að kvitta hér fyrir neðan. Þú mátt líka gjarnan koma með uppástungur um hvað þú værir til í að sjá mig skrifa um.
Lykkjað knús á línuna,
Tína