Katrín Jakobsdóttir birti eftirfarandi færslu á Facebook í dag í kjölfar háværrar umræðu í fjölmiðlum í dag um skattastefnu Vinstrihreyfingarinnar – Græns framboðs:
„Einhverjir eru núna að missa sig vegna umræðna um skattamál. Því er rétt að benda á að Vinstri græn hafa lagt þunga áherslu á það að farið verði í kerfisbreytingar sem miða að því að auka jöfnuð og draga úr misskiptingu í samfélaginu.
Í því felst að sótt verði fram í heilbrigðis-, mennta- og velferðarmálum samhliða umbótum í skattamálum sem annars vegar miða að því að fjármagna þessa sókn og hins vegar að því að velta skattbyrði af lág- og millitekjuhópum yfir á hátekjuhópa.
Til þess að við getum ráðist í nauðsynlegar aðgerðir í heilbrgigðismálum, menntamálum og til þess að leiðrétta kjör aldraðra og öryrkja þarf ríkissjóður auknar tekjur. Þessar tekjur viljum við tryggja með því að taka á skattsvikum sem varlega eru áætluð um 80 milljarðar á ári, með því að tryggja auknar tekjur af nýtingu sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar og kanna möguleika á því að skattleggja fjármagnið sem þar er að finna.
Þetta þýðir kerfisbreytingar í skattamálum sem færa skattbyrði af lág- og millitekjuhópum yfir á hátekjuhópa. Þannig aukum við jöfnuð og tryggjum að allir njóti þeirrar uppsveiflu sem er í efnahagslífinu.
Þessar áherslur Vinstri grænna ættu ekki að koma neinum á óvart. Við lofum nefnilega ekki auknum útgjöldum í heilbrigðisþjónustu og skólamálum (sem allir segjast vilja) nema við teljum að við getum aflað tekna á móti og að þeirra tekna sé aflað með réttlátum hætti.
Að sjálfsögðu er þetta vinstrisinnuð stefna en það er nú ekki hægt að saka okkur um að hafa siglt undir fölsku flaggi í þeim efnum.“