Næstkomandi miðvikudag 30. nóvember hefst norræni danstvíæringurinn Ice Hot í Kaupmannahöfn. Þetta er stærsta danshátíð Norðurlanda, sem samtök frá öllum löndunum standa að. Hér á landi er það Sviðslistsambandið Íslands en tvíæringurinn hefur verið haldin frá árinu 2010, fyrsti í Stokkhólmi, svo í Helsinki 2012 og svo í Osló 2014. Nú er komið að Kaupmannahöfn en síðast en ekki síst, verður hann haldinn á Íslandi 2018.
Ice Hot í Kaupmannahöfn stendur frá 30.nóvember – 4. desember.
Hátíðin dregur að sér fagaðila allstaðar að úr heiminum og býður upp á það besta og framsæknasta í norrænum dansi hverju sinni. Fimm manna dómnefnd velur verkin. Var hún skipuð norrænu fagfólki og sat Katrín Hall, fyrrum stjórnandi Íslenska dansflokksins og nýr stjórnandi Gautaborgardanshópsins, í nefndinni fyrir Íslands hönd.
Sjö íslensk verk verða kynnt og hafa þau aldrei verið fleiri. Þau eru:
Black Marrow Íslenska dansflokksins http://www.icehotnordicdance.com/performance/black-marrow/
Margrét Sara Guðjónsdóttir með verk sitt Spotted http://www.icehotnordicdance.com/performance/spotted/
Melkorka Magnúsdóttir með Milkywhale http://www.icehotnordicdance.com/performance/milkywhale/
Bára Sigfúsdóttir með The Lover http://www.icehotnordicdance.com/performance/the-lover/
Ásrún Magnúsdóttir með verk sitt Church of Dancy http://www.icehotnordicdance.com/performance/church-dancy-asrun-magnusdottir/
Rósa Ómarsdóttir og Inga Huld Hákonar með verk sitt The Valley http://www.icehotnordicdance.com/performance/the-valley/
Íslenski dansflokkurinn með barnaverki Óður og Flexa halda afmæli http://www.icehotnordicdance.com/performance/loco-kicks-throw-birthday-party/
Þrjú síðast töldu verki verða kynnt í sérstakri dagskrá sem kallast More More More.
Hér má sjá heildar tilkynningu um hátíðina.
Næsti tvíæringur verður á Íslandi og er þegar búið að ákveða dagsetninguna en hún er 12. – 16. desember 2018, í Reykjavík.