Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Benedikt grípur til varna

$
0
0

Benedikt Jóhannesson skrifar grein á vefnum Heimur.is í gær sem ber heitið, Þessi maður á ekkert gott skilið (BJ). Í greininni verst Benedikt ásökunum sem hann telur sig hafa orðið fyrir, fjallar um umræðuhefð og stjórnmálasiðferði og orðræðu á netinu í hans garð. Tilefni þess að Benedikt drepur niður penna er myndband Jæja hópsins sem farið hefur eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla. Í myndbandinu er stiklað á stóru í meintri ferilskrá Benedikts og segist Benedikt í greininni vera gáttaður á því hvað fólk sem hann viti engin deili á láti frá sér fara.

Þessa dagana gengur nafnlaust myndband um meintan svikaferil minn í viðskiptum og víðar á netinu. Þar eru ýmis atriði úr mínum ferli tekin upp og gefið í skyn að ég sé hinn versti þrjótur. Ég sá að einhverri konu varð flökurt að lesa um þennan ódám.

Ég ætla ekki að fara yfir þau atriði öll hér, atriði sem í besta falli eru villandi og sum röng. Nefni þó tvennt:

 

Mér er gefið að sök að hafa með einhverjum hætti stuðlað að gjaldþroti Eimskipafélagsins tæplega fimm árum eftir að ég lét af formennsku í félaginu. Hið sanna í því máli er að Landsbankinn, sem þá var viðskiptabanki Eimskipafélagsins, ákvað að leiða fjandsamlega yfirtöku á félaginu. Orðalagið „fjandsamleg yfirtaka“ er oftast notuð í þeirri merkingu að yfirtakan sé fjandsamleg fyrri eigendum, en í þetta sinn var hún beinlínis fjandsamleg félaginu sjálfu sem er óvenjulegt. Flestir stjórnendur voru látnir fara á árunum 2003-4. Einn ágætur félagi minn og fyrrverandi innanbúðarmaður í Eimskipafélaginu sagði af því tilefni: „Eimskipafélagið er svo gott félag að það tekur að minnsta kosti fjögur ár að gera það gjaldþrota, en þá þurfa menn til þess einbeittan vilja.“ Fjórum árum síðar var þetta fyrrum óskabarn þjóðarinnar komið í þrot. Þegar ég lét af formennsku var félagið fjárhagslega sterkt með tíu þúsund hluthafa, en eftir 9. október 2003 hafði ég engin afskipti af félaginu.

Eins er talað um að ég hafi komið Sjúkratryggingum Íslands á laggirnar til þess að einkavæða heilbrigðiskerfið. Hér gætir mikils misskilnings. Sjúkratryggingar Íslands sjá um að greiða fyrir hlut ríkisins í heilbrigðisþjónustu og semja um verð á henni. Þetta hlutverk var áður hjá Tryggingastofnun að mestu. Sjúkratryggingar sjá ekki um neina einkavæðingu, en semja við aðila sem veita þjónustu, hvert sem rekstrarformið er. Ögmundur Jónasson, þingmaður VG hafði verið skeptískur á Sjúkratryggingar en í upphafi árs 2009 varð hann heilbrigðisráðherra. Það er alþekkt að við Ögmundur höfum ólíka pólitíska sýn, en ég hélt áfram sem formaður allan ráðherraferil hans. Ögmundur er ekki þekktur baráttumaður fyrir einkavæðingu. Mér þykir vænt um þennan tíma því að við Ögmundur kynntumst betur og allt okkar samstarf var með miklum ágætum. Enn einu sinni komst ég að því að hve langt maður getur náð í samskiptum, ef maður aðskilur málefnin og mennina.“

Grein Benedikts er hægt að lesa hér í heild sinni

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Trending Articles