Ef við þráumst við og höldum áfram á sömu braut í menntamálum þá endum við kennaralaus innan tíðar. Menntaðir kennarar geta nefnilega mjög auðveldlega þénað meira annarsstaðar. Til dæmis í Bónus. En það er óþarfi að örvænta, við getum fengið útlendinga til að sjá um þetta fyrir okkur.
Fengið hingað kennara í gegnum erlendar starfsmannaleigur á spottprís. Ég er viss um að þar á bæ eru menn mikið meira til í það að kenna börnum íslensku í upphitaðri skólastofu en að strita launalaust ofan í skurði á einhverju byggingarsvæði í öllum veðrum.
Það er margt sem börnin okkar geta lært af svona farandkennurum. T.d að lífið er oft ósanngjarnt, að allir menn og hlutir eru „kurva“ og að menntun er mjög mikilvæg ef þú vilt ekki þurfa að að vinna við vanþakklát og illa launuð störf eins og kennslu.
Önnur hugmynd væri að fá ferðamenn til að kenna í staðinn fyrir að fá að gista í skólunum. Þá þarf ekki að byggja fleiri hótel. Með öllum þessum fjölda ferðamanna væri leikur einn að manna þetta. Þeir fá að gista frítt í skólunum og börnin fá fyrirtaks alþjóðlega menntun. Fjölbreytnin meðal kennara væri þá svo mikil að víðsýni íslenskra nemenda yrði til fyrirmyndar. Einn daginn væru það vinaleg bandarísk hjón sem sæju um kennsluna en daginn eftir væri það finnskur rappari sem spilar á Airwaves seinna um kvöldið. Börnin geta skapað sér tekjur með því að selja kennurunum sínum ullarpeysur og tuskulunda.
Við getum líka bara hent börnunum inn á einhverja skrifstofuna strax eftir leikskóla og látið fyrirtækin í landinu sjá um að kenna og fræða börnin. Þannig geta þau alið upp hinn fullkomna starfsmann frá grunni. Það er hvort sem er stefna stjórnvalda að stytta nám barna og koma þeim fyrr inn á vinnumarkaðinn. Því ekki að sætta okkur við það núna að okkur er ætlað að verða þrælar atvinnulífsins og gera það bara almennilega. Ef þér er skutlað sex ára gömlum niður í Sjóvá á hverjum degi þá verður þú sko frábært tryggingasölumaður um tvítugt og þarft ekkert annað.
Fyrirtækin þyrftu auðvitað eitthvað að aðlaga sig að því að vera allt í einu orðin uppeldisstofnun líka. Starfsmenn Dekkjaverkstæðis Guðsteins eru kannski ekki vanir því að hafa lítinn bekk af upprennandi dekkjaverkstæðisköllum en til lengri tíma litið má búast við minni röðum þegar allir vilja nagladekkin undir í einu.
Við þurfum að fara að hugsa út í þetta. Við þurfum að hafa einhverja áætlun til að skólastarf leggist hreinlega ekki af. Nú ef menn eru ekki tilbúnir að láta útlendinga eða bara einhverja aula af götunni sjá um kennsluna þá þurfum við að hækka launin. Bara það að kennarar næðu meðallaunum í samfélaginu væri strax byrjun.
Við gætum beitt sömu rökum og eru fyrir háum launum stjórnenda og þeirra sem bera mikla ábyrð til að réttlæta hækkun kennaralauna. Það hlýtur að gilda það sama og í fyrirtækjarekstri að við fáum betri kennara fyrir vikið og þar af leiðandi betri menntun.
Það orkar nefnilega mjög tvímælis að við sem þjóð tölum um mikilvægi menntunar og greiðum svo þeim sem sjá um að mennta okkur ömurlegt kaup. Svo eru börnin það mikilvægasta sem við eigum en samt ekki það mikilvæg að við séum tilbúin að greiða þeim almennilega sem sjá um að undirbúa þau undir lífið.
Við sýnum ekki störfum þar sem unnið er með fólk neina virðingu. Öll okkar áhersla er á peninga og vinnumarkaðurinn endurspeglar það. Ef þú passar að einhver geti grætt einhverstaðar þá metur samfélagið þig verðugan launa þinna en ef þú passar upp á að einhver muni geta fótað sig í lífinu þá máttu hafa þig allan við að eiga í þig og á. Stór hluti þjóðarinnar kýs sérstaklega flokkinn sem hefur þetta beinlínis á stefnuskránni.
Ég fagna því að kennarar láta ekki bjóða sér þetta lengur. Ég er líka ánægður með að þeir hafi fundið aðgerðarsinnann í sér og fari bara beint í uppsagnir í stað þess að standa í þessum verkfallsdansi sem engu skilar. Ef það er ekki komið vel fram við þig og af virðingu þá tekur maður saman og fer. Það á við jafnt um hjónabönd, starfsvettvang og hvað sem gengur á í lífinu.
Boltinn er hjá stjórnvöldum – að sýna okkur hvers virði menntun barnanna okkar er. Ef hún er einskis virði þá er flott að fá það bara á hreint sem fyrst. Kennarar sem færa sig yfir í ferðaþjónustuna geta þá frætt erlendu ferðamennina um það hvað raunverulega skiptir okkur Íslendinga máli.
Annars er ég sannfærður um það að ríkið lúffar fyrir réttlátum kröfum kennara um leið og bankastarfsmenn geta ekki mætt í vinnuna því þeir eru fastir heima með börnunum sínum.