Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Frítt í sund og á söfn fyrir nemendur

$
0
0

Borgarráð samþykkti að allir framhaldsskólanemar fái aðgang að öllum sundstöðum og menningarstofnunum Reykjavíkurborgar á meðan verkfall framhaldsskólakennara stendur yfir.  Ekki verður nein tímasetning á aðgangi og þurfa nemendur einungis að framvísa skólaskírteini.

Screen Shot 2014-03-31 at 1.02.59 PM

Reykjavíkurborg rekur 7 sundlaugar og nánari upplýsingar um opnunartíma má nálgast hér.

Þá rekur borgin 8 söfn; þau eru Listasafn Reykjavíkur (Hafnarhús, Kjarvalsstaðir og Ásmundarsafn), Árbæjarsafn, Landnámssýningin í Aðalstræti, Sjóminjasafnið í Reykjavík, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Menningarmiðstöðin Gerðuberg, en þegar er gjaldfrjáls aðgangur að tveimur síðasttöldu.

Borgarbókasafn Reykjavíkur var undanskilið í tillögu borgarráðs enda er þar gjaldfrjáls aðgangur þótt bókasafnsskírteini, sem gildir í heilt ár, kosti 1700 kr. fyrir 18 ára og eldri.

Nemendur eru hvattir til að nýta tækifærið og njóta þess að geta tekið sundsprett og kynna sér menninguna í borginni sér að kostnaðarlausu.

 

Ljósmyndir eru af vef Reykjavíkurborgar.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283