Lífleg stemming myndaðist fyrir framan Lyfju í Smáralind á Konukvöldi Smáralindar og K100.5. Skemmtilegir básar þar sem það nýjasta í förðunarvörum, sokkabuxum og tísku var kynnt og vakti mikla athygli.
Vínskóli Ölgerðarinnar var á staðnum að kynna nýtt og skemmtilegt námskeið en Vínskóli Ölgerðarinnar er 2 klukkustunda námskeið þar sem talað er um vín á mannamáli þar sem kennararnir miðla þekkingu sinni af mikilli ástríðu og húmor. Somersby kynnti einnig mest selda cider á Íslandi við góðar undirtektir.
Nýja sumarlína Oroblu var einnig til sýnis en sokkabuxur, leggings, sokkar og tátiljur eru ómissandi partur af sumarfataskápnum. Sérstök athygli var þó á klassísku sokkabuxunum frá merkinu eins og Shock Up 60 den sem eru sérstaklega áferðafallegar sokkabuxur, þéttar og sparilegar.
Oroblu mælir ekki bara með að þessar sokkabuxur séu notaðar við pils eða kjóla heldur líka innan undir buxur til að halda við og móta líkamann. En einnig ná sokkabuxurnar frá Oroblu hátt uppá mittið svo maður þarf ekki að óttast að hafa bert á milli þegar maður beygir sig fram.
Oroblu tók höndum saman við tískufataverslunina VILA sem opnaði nýlega nýtt lúkk á verslun sinni í Smáralind og hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár. Stílistinn Ási Már leiðbeindi gestum Konukvöldsins hvernig mætti para saman klassískan klæðnað við við Oroblu sokkabuxur.
Förðunarfræðingar hjá Real Techniques sýndu nýjungar frá merkinu og ráðlögðu konum með kaup á burstum.
Einnig bauðst gestum uppá að fara í smá förðunarráðgjöf hjá Ernu Hrund förðunarfræðing- og bloggara ásamt förðunarfræðingum frá L’Oreal sem kenndu konum öll helstu leyndarmál sín til að ná fullkomnri förðun.
Þær sýndu konum margar skemmtilegar nýjungar frá bæði L’Oreal og Real Techniques og gáfu góð ráð um hvað hentaði hverri konu.
Konur nýttu sér frábæra afslætti sem voru á snyrtivörunýjungum þetta kvöld og má þar helst nefna nýjan maskara Miss Manga frá L’Oréal en auk þess voru CC krem einstaklega vinsæl. Með CC kremum má laga litarhaft húðarinnar eins og að draga úr roða eða þreytu í húðinni.
Til að klára heildarlúkkið ráðlögðu starfsmenn Modus Hárstofu í Smáralind konum hvernig þær gætu mótað hárið sitt eftir heitustu hártrendunum og sýndu þeim hvernig fara átti að.
Frábært konukvöld í Smáralind í alla staði og vonandi er ekki of langt í það næsta.
Kostuð kynning