Áskorun frá Amnesty International:
Árlegt Bréfamaraþon Amnesty International fer fram á skrifstofu Amnesty næstkomandi laugardag, þann 10. desember frá kl. 13:00 til 17:00. Á Bréfamaraþoni Amnesty koma hundruð þúsunda saman um heim allan og krefja stjórnvöld um úrbætur í mannréttindamálum með bréfaskrifum, tölvupóstum og undirskriftum. „Stuðningskveðjurnar eru ekki síður mikilvægar því þær halda gjarnan lífi í þolendum mannréttindabrota, efla styrk og veita þeim von um lausn sinna mála. Á laugardaginn verður hægt að skrifa stuðningskveðjur til allra þeirra ellefu einstaklinga sem barist er fyrir í ár en einnig verður unnt að skrifa kveðjur til flóttamanna sem búa við ömurlegar aðstæður í flóttamannabúðum á Grikklandi, komast hvorki lönd né strönd og hafa misst alla von um betra líf,“ segir í tilkynningu Amnesty.
„Á undanförnum árum hefur stór fjöldi Íslendinga látið sig mannréttindabrot varða með þátttöku sinni á Bréfamaraþoni samtakanna. Sá samtakamáttur sem myndast hefur hér á landi í baráttunni fyrir þolendur grófra mannréttindabrota er einstakur og þakkaði Moses Akatugba frá Nígeríu Íslendingum sérstaklega fyrir að hafa stutt sig í baráttunni þegar hann heimsótti landið á dögunum,“ segir í tilkynningu Amnesty vegna viðburðarins. „Mál hans var tekið upp á Bréfamaraþoni Amnesty árið 2014 en Moses sætti pyndingum og tíu ára fangavist í heimalandi sínu, þar af sat hann tvö ár á dauðadeild. Moses var náðaður í kjölfar Bréfamaraþonsins í maí 2015.“
Þá segir Amnesty að fleiri þurfa nú á aðstoð og baráttukrafti að halda. „Í ár berjumst við fyrir réttlæti ellefu einstaklinga sem allir hafa sætt margvíslegum mannréttindabrotum. Við hvetjum ykkur til að leggja okkur lið í baráttunni í ár til að fleiri einstaklingar eins og Moses fái notið frelsis og mannlegrar reisnar.“
Boðið verður upp á kaffi og kruðeríi og Gunnar Þórðarson tekur nokkrar hugljúfar dægurperlur.