Það er dauði og djöfuls nauð
er dyggðasnauðir fantar
safna auð með augun rauð
en aðra brauðið vantar.
Já elskurnar mínar, ljótt er síratið. 2016 var árið sem miðlungsmenn, jafnaðarskoffín, mannvinir og skrifstofublækur um allan heim áttuðu sig á því að allt væri á hraðferð til helvítis. Það er nefnilega ekki nóg að meina vel ef maður nennir ekki að klæða sig í drullugallann og moka skítinn í kringum sig.
En örvæntið eigi! Því það verður einmitt þegar þið þurfið að fara að éta Arne Jacobsen-eggin ykkar og þvo nærföt af ferðamönnum fyrir mat sem þið munið vakna til lífsins og finna hvernig það er að vera til í raun og veru! Árið 2017 verður ár endurfæðingar fyrir þá sem nenna að hugsa, vinna og framkvæma – hinna bíður að marséra í takti fáguðu fasistanna, teika ríku vinina í veikri von um brauðmola og glata að lokum allri sjálfsvirðingu. Lífið er val!
Heimska, græðgi og mannhatur tröllriðu árinu 2016. Það sýna forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, Brexit Breta, þjóðernisflokkaupprisa um gjörvalla álfuna og miskunnarlaus meðferð milljóna flóttamanna sem eru á vergangi um allar jarðir. Hér heima elskum við kúgara okkar svo mikið að við höldum þeim við kjötkatlana hvað sem það kostar.
Hin óbrigðula Völva Kvennablaðsins hefur tekið saman það helsta sem gerist á árinu 2017.

Stjórnmálin 2017: Ár hinnar algjöru sáttar
Við byrjum auðvitað á stjórnmálunum, enda skipta þau minnstu máli. Árið 2017 verður síðar meir kallað Ár Herranna, þar sem völd kvenna munu ná óvæntu lágmarki á árinu, en í staðinn munum við njóta árs hinnar algjöru sáttar í íslenskri pólitík. Þegar á fyrstu dögum ársins verður mynduð ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar, Benedikts Jóhannessonar, Óttarrs Proppé og allra sem heita Benedikt, Bjarni, Einar, Sveinn eða Proppé. Nýtt ráðuneyti, Jákvæðniráðuneytið, vekur furðu til að byrja með, en dregur blessunarlega athygli frá öllu sem máli skiptir og verður fyrirmynd víða um lönd á næstu árum.
Ákvarðanir hinar nýju ríkisstjórnar verða að mestu óumdeildar framan af ári. Þingfundir verða stuttir og átakalitlir enda almenn sátt um að fæst orð hafi minnsta ábyrgð. Margklofin stjórnarandstaðan mun gefast upp á að senda frá sér mótsagnakenndar yfirlýsingar, láta af öllu andófi og snúa sér að innri málum.
Forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, mun játa í þætti Gísla Marteins síðla í febrúar að bjölluhamarinn hafi verið „týndur í meira en mánuð“. Mæting þingmanna nær nýjum lægðum og mun þingheimur sinna kjördæmum sínum af áður óþekktri alúð.
Algjör þingfriður mun hafa óvænt áhrif á einkalíf kjörinna fulltrúa. Með vorinu kemur í ljós að þrálátar Gróusögur um samdrátt kafteins Pírata, Birgittu Jónsdóttur, og andlegs leiðtoga landsliðshóps karla í knattspyrnu, Þorgríms Þráinssonar, voru annað og meira. Eftir stormasamt sumar verða þau kjörin Par ársins á menn.is með miklum yfirburðum í árslok. Almennt mun ástalíf þingmanna standa með blóma.
Formaður velferðarnefndar, Pawel Bartoszek, stendur í ströngu á árinu eftir að hafa lýst því yfir að „velferð [sé] nauðgun“, en frægt er orðið að hann álítur skatta ofbeldi og formaður fjárlaganefndar, Sigríður Andersen vekur athygli í júní þegar hún skilar fjárlögum næstu fimm ára með næstum 1000 milljarða afgangi. „Ég sé ekki að við þurfum í sjálfu sér að skattleggja neitt nema einhverja lúsera,“ segir þingmaðurinn á frægum fundi Viðskiptaráðs. Í ljós kemur að tillaga Sigríðar felur í sér stórfelldan niðurskurð á öllu nema vopnakaupum.
Umboðsmaður Alþingis segir óvænt af sér í mars og ber við persónulegum ástæðum. Nýr umboðsmaður Alþingis, Sigurður Líndal, tekur við störfum í maí og afþakkar frekari fjárveitingar til embættisins.
Af öðrum tíðindum mun líklega bera hæst að Katrín Jakobsdóttir yfirgefur hið pólitíska svið á árinu.

Lýðheilsan 2017: Landspítölum fjölgað í sjö
Með vísan til velgengni síðustu ára verður Kristjáni Þór Júlíussyni falið að halda áfram að gera akkúrat og nákvæmlega ekki neitt. Kvefaður almenningur mun beita hann auknum þrýstingi til að taka á málum Landspítalans með endurteknum leiksýningum, þar sem óprúttið starfsfólk beitir helsjúku fólki fyrir sig í örvæntingarfullum tilraunum til að fá leyfi til að hringja á lyftuviðgerðarmann.
Mikilvægir hollvinir Landspítalans munu stíga fram á árinu. Mjólkursamsalan mun sýna spítalanum samstöðu á erfiðum tímum með því að markaðssetja nýjan grænmygluost, Lansann, og lofar að láta söluandvirði sem nemur græna hluta ostsins renna til spítalans. Fráfarandi forstjóri spítalans kallar framlag MS „dropa í hafið“ og uppsker reiðilestur Ara Edwald. Í kjölfarið lætur forstjórinn af störfum og helsti hollvinur spítalans, Guðjón Brjánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, félagsráðgjafi og fyrrverandi framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, tekur við starfinu meðfram þingmennskunni. Hann lætur gamlan draum rætast um að „taka til í rekstri Landspítalans“ og hefur tafarlaust undirbúning að flutningi sjúklinga af höfuðborgarsvæðinu út á land, með áherslu á heilabilaða, geðsjúka og langveik börn.
Eftir slysasumar grípur forseti Íslands til örþrifaráða og leitar samstarfs við kaþólsku kirkjuna. Talsverður fjöldi nunna verður sendur tafarlaust til landsins og opnar sjúkrahús í Hafnarfirði, Stykkishólmi, Reykjanesbæ og Vestmannaeyjum. Í kjölfarið verða raddir um „Siðaskiptaleiðréttingu“ all háværar.
Landlæknir hættir störfum vegna aldurs og óljóss erindis og styrr verður um skipan næsta landlæknis. Völva sér illa til í því ölduróti sem skapast um ráðningu eftirmanns hans, en helst verða nefndir til sögunnar Óttar Guðmundsson, Dagur B. Eggertsson og Árni Mathiesen, dýralæknir. Fallið verður frá tillögu Sigríðar Andersen um að leggja embættið niður eftir að í ljós kemur að húsaleigusamningur þess við Seltjarnarnesbæ er verðtryggður á 5% vöxtum til 99 ára og var leigan greidd fyrirfram.
Framkvæmdir við nýja Landspítala hefjast víðsvegar á suðvesturhorni landsins, Akureyri, Vestmannaeyjum og Höfn í Hornafirði. SV-NA braut Reykjavíkurflugvallar verður opnuð á ný þann 1. apríl og nefnd „Hin Íslenska Neyðarbraut“ með sérstakri reglugerð. Kári Stefánsson vígir jáeindaskanna við Hringbraut en við athöfnina kemur til handalögmála og þarf að kalla til lögreglu til að skakka leikinn. Tjón á skannanum verður minniháttar, „dropi í hafið“ að mati hins nýja forstjóra Landspítalans, Alfreðs Þorsteinssonar.

Listir og menning: Upprisa ádeilulista í kjölfar óvæntra Nóbelsverðlauna
Ár Herrans 2017, verður ár Konunnar þegar kemur að listum og menningu. Það verður helst að frétta í bókmenntaheiminum 2017 að loksins fær Guðbergur Bergsson Nóbelsverðlaunin vonum seinna. Í sigurvímunni munu bókmenntirnar vakna af djúpum dvala, ádeiluverk verða samin og beitt ljóð ort um siðspillta velmegun, massatúrisma, skeytingarleysi, stéttaskiptingu, læknadóp og sölu Íslands til erlendra ríkisbubba.
Mynd Ara Alexanders um „líkfundarmálið“ mun vekja hvað mesta athygli erlendis en verða gagnrýnd nokkuð fyrir ótrúlega framvindu sögunnar og hrollvekjandi framgöngu hlutaðeigandi glæpamanna. Það mun vekja nokkra furðu að myndin byggir á raunverulegum atburðum.
Íslenskar kvikmyndir um samkynhneigð börn eða húsdýr halda áfram að vinna til verðlauna í hinum dreifðari byggðum. Kristín Jóhannesdóttir mun ná að klára kvikmyndina „Alma“ sem hún hefur unnið að síðustu ár og vinnur með þeirri mynd sinn stærsta listræna sigur. Ísold Uggadóttir fer einnig af stað með sína fyrstu mynd í fullri lengd og mynd Ásu Helgu Hjörleifsdóttur „Svanurinn“ verður frumsýnd við góðar viðtökur. Af öðrum kvikmyndagerðarkonum sem munu láta til skarar skríða má nefna Ásthildi Kjartansdóttur, Veru Sölvadóttur og Eydísi Blöndal. Sú síðastnefnda frumsýnir á árinu heimildarmynd sína „Meðganga mín í fullri lengd“ við mikinn fögnuð, en myndin er u.þ.b. 9 mánuðir að lengd.
Serían „Fangar“ sem sýnd verður á RUV mun fá mikið áhorf meðal fanga útvarpsgjaldsins og leikkonurnar, handritshöfundarnir og framleiðendurnir Nína Dögg og Unnur Ösp munu njóta mikillar og verðskuldaðrar athygli fyrir frammistöðu sína.
Ríkissjónvarpið færir sig upp á skaftið í íslenskri dagskrárgerð með nýráðnum dagskrárstjóra, Sigmundi D. Gunnlaugssyni. Spjallþáttur hans, „Sátt með Sigmundi“, verður meðal vinsælustu þátta stöðvarinnar, en í honum verða deiluaðilar úr öllum lögum samfélagsins leiddir í gegnum ferli sátta og fyrirgefningar, Landsbyggðarpakk og Lattelepjarar, Útgerðardólgar og Auðlindafrekjur, Læknamafíósar og Loforðasvikarar.
Halla Tómasdóttir mun óvænt bjóða sig fram til forseta á vordögum 2017, og verður litið á það sem listrænan gjörning.
Dansflokkurinn undir stjórn Ernu Ómarsdóttur mun skila í hús afar umdeildri sýningu en árið verður gjöfult hvað varðar dansmenningu landsins og tveir ungir danshöfundar munu láta til sín taka síðla árs.
Eftir ófarir í Þjóðleikhúsinu og útistöður við hinn meinfýsna skemmtikraft og skífusíma Jón Viðar Jónsson réttir Gísli Örn úr kútnum í Borgarleikhúsinu með vorinu en þar verður það ung og nýútskrifuð leikkona sem stelur senunni. Nýtt barnaleikrit Guðjóns Davíðs Karlssonar verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu og það mun slá í gegn þó ekki verði Grímuverðlaunauppskeran mikil undir vorið frekar en endranær þegar fjölskyldu- og barnaleikrit eiga í hlut.
Í íslenskri leikritun verður fyrir utan hið ofangreinda fátt að frétta, fyrr en undir lok árs þegar nýtt leikskáld kveður sér hljóðs með eftirminnilegu verki sem mun endurspegla þjóðarsálina svo nákvæmlega að eftir sýningar neyðist leikhúsið til þess að bjóða upp á áfallahjálp, kaffi og kleinur, klapp á bak og knús.
Nýir Íslendingar munu ryðjast fram á ritvöllinn og breyta gömlum hugmyndum um land, þjóð og tungu. Bókmenntirnar munu hrista svo hressilega upp í þrælslund og neysluhyggju lesenda að 2017 verður lengi í minnum haft. Eitt stærsta bókaforlag landsins flytur í árslok búferlum í Fellahverfið.

Útrunnið ár í landbúnaði
Nýju markaðsátaki allra samtaka framleiðenda í landbúnaði verður hleypt af stokkunum fyrir Verslunarmannahelgi. Slagorð herferðarinnar „Það er sama hvaðan gott kemur“ verður umdeilt en árangursríkt. Hverskyns merkingar á matvælum aðrar en íslenskur fáni og óljós innihaldlýsing – svo sem „kjöt“, „fiskur“ og „grænmeti“ – verða bannaðar. Vekur þetta nokkra furðu, en skýringin kemur í fyrsta haustþætti Gísla Marteins, þar sem ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðarmála, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, kveður þetta skilyrði fyrir stuðningi Framsóknarflokksins við ríkisstjórn með tæpan meirihluta.
Menntamál: Ár boltans
Í janúar tekur nýr menntamálaráðherra, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, við embætti af forvera sínum sem hrökklaðist úr stjórnmálum vegna spillingarmála. Aðstoðarmaður hennar verður Ólafur Stefánsson, handknattleiksmaður.
Í haust verða tekin upp „hófleg“ skólagjöld í öllum opinberum skólum og renna þau óskipt til Vegagerðar ríkisins annars vegar en Ríkislögreglustjóra hins vegar.
Þáttöku Íslands í PISA könnunum verður hætt eftir að í ljós kemur að íslenskar þýðingar prófanna voru óskiljanlegt rugl og aldrei neitt að marka niðurstöðurnar. Eftir þriggja daga uppnám á samfélagsmiðlum ríkir almenn sátt um þetta fyrirkomulag og þjóðin verður sem fyrr læsasta þjóð í heimi. Handbolti kemur nýr inn á aðalnámskrá grunnskóla 2017-2020.

Iðnaður og nýsköpun
Íslenska iðnbyltingin, sem hófst árið 2016, mun halda áfram á ógnarhraða. Við Helguvík verður fírað upp í fjórum nýjum kísilofnum og bæjarbúum gert skylt að ganga með andlitsgrímur í norðvestanátt. Reykjanesbær verður alþjóðleg miðstöð netverslunar með fatnað og annan varning sem selja þarf á niðursettu verði vegna reykskemmda.
Eftir umfangsmiklar jarðvegsframkvæmdir Sólarkísils á Grundartanga kemur í ljós að grunnhugmyndin gengur þvert á lögmál eðlisfræðinnar. Ótal lífeyrissjóðir tapa umtalsverðum fjárhæðum sem þeir kalla „dropa í hafið“.
Framkvæmdir hefjast við stórskipahöfn og fanganýlendu í Finnafirði, sem Völvu sýnist vera einhversstaðar fyrir austan.
Á Bakka við Húsavík halda framkvæmdir áfram af fullum krafti við uppbyggingu kísilvers. Nokkra kátínu vekur þegar núverandi bæjarstjóri í Norðurþingi tekur fyrstu skóflustungu að rykgrímuverksmiðju í eigu fyrrverandi bæjarstjóra, sem einnig er starfsmaður PCC á Bakka.

Helstu tíðindi úr undirheimum 2017
Sakamál ársins verður óefað Guðmundar- og Geirfinnsmálið, en það verður upplýst á árinu og munu önnur sakamál falla nokkuð í skuggann. Þrátt fyrir fund líkamsleifa Geirfinns mun Hæstiréttur þó hvergi hvika og staðfesta fyrri niðurstöðu. Dómsmálaráðherra, Brynjar Níelsson, kallar háðuleg ummæli heimspressunnar „dropa í hafið“.
Síðla árs mun einn af ástsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar sýna tónlistarkonunni Rihönnu banatilræði.
Annþór Karlsson leggur verulega af á árinu og verður kallaður „Drull fit“.
Á útmánuðum neyðist Sigríður Björk Guðjónsdóttir til að segja starfi sínu lausu vegna enn eins hneykslismálsins innan lögreglunnar. Við starfi hennar tekur Georg Lárusson. Í desember verður öllum götulögregluþjónum gert að bera hríðskotabyssur við störf sín.
Vöðvarýrnun á íþróttasviðinu
Völva er hvorki femínasisti né antísportisti en ekki ljúga spilin: Okkar stæltu strákar og stelpur munu því miður lyppast niður á árinu sem nú fer í hönd. Annað eins vonbrigðaár er satt að segja vandfundið í annálum sportsins. Íþróttamaður ársins fellur niður um deild og félagar hans verða lánaðir, seldir eða gefnir. Aníta Hinriks verður ólétt af tvíburum. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fellur á lyfjaprófi og leggur kylfuna á hilluna og Hrafnhildur Lúthersdóttir fær leið á sundi. Þjóðin mun hugga sig við sæmilegt gengi á smáþjóðaleikunum, undir hvetjandi auga ráðherra mennta- og íþróttamála, Þorgerðar K. Gunnarsdóttur.

Ár hanans
Þann 27. janúar gengur ár hanans í garð hjá frændum vorum, Kínverjum. Þeir verða í fyrsta sinn langfjölmennastir erlendra gesta og standa undir stærri hluta þjóðarframleiðslunnar en Vestmannaeyjar, Akureyri, Eskifjörður og Grindavík samanlagt. Vegagerð ríkisins mun heimta aukið fjármagn til að standa straum af merkingum við þjóðveg nr. 1 á Mandarín-kínversku og eftir að kínverska iðnaðarráðuneytið sendir vinnuflokk til að ljúka gerð Vaðlaheiðarganga verða þau opnuð á haustmánuðum.
Ferðaþjónustan blómstrar sem aldrei fyrr og í fyrsta sinn verður meira en helmingur kosningabærra manna og kvenna með einhverskonar leyfi. Meirapróf, leiðsögumannsréttindi, veitingaleyfi, gistihúsaleyfi, ferðaskipuleggjendaleyfi verða algengari en stúdentspróf. Lífeyrissjóðir landsmanna helga sig nánast alfarið rútu- og bílaleigubílarekstri, ásamt rekstri starfsmannaleiga og setja nú hreint á rúm um allar þorpagrundir í samstarfi við flókið net eignarhaldsfélaga og sjóðstýringa. Háværar raddir heyrast um gagnaðgerðir gegn netmiðlum sem dreifa neikvæðni um bílaleigubíla á sumardekkjum á Mosfellsheiði, kjötsúpu með tutlum á 3900 og 35.000 króna hótelherbergjum í Ármúla.
Hótel Adam skiptir um nafn og kennitölu á árinu, tískuversluninni Evu á Laugavegi til skapraunar. Dótturfyrirtækin Hótel Kain og Hótel Abel opna á Hellisandi og Rifi.

Náttúröflin verða hliðholl
Vegna hlýnunar jarðar af mannavöldum og fyrir Guðs mildi verða náttúruöflin óvenju hliðholl á árinu sem í hönd fer. Aukin úrkoma eykur vinsældir gúmmískósins svo mjög að verksmiðjur rísa í hverjum landsfjórðungi og meðal íslenskrar þjóðar vaknar sú krafa að túttan verði gerð að hluta af þjóðbúningnum. Hlýsjávartegundir taka að sækja í íslenska landhelgi og verða þar strádrepnar og seldar til Rússlands sem áburður. Vestfirðir hasla sér völl á sviði sorpbrennslu og urðunar spilliefna. Björt Ólafsdóttir, umhverfisráðherra, hvetur landsmenn til að líta jákvætt á umbúðir almennt.
Hekla gýs í ágúst-september. Rétt áður hefst gos í eða við Kolbeinsey, sem tryggir landhelgi Íslands til norðurs. Kötlugos hefst í desember og tryggir enn eitt metár í komu ferðamanna til landsins 2018. Þó verður að teljast neikvætt að í gosinu farast 3 starfsmenn prjónaverksmiðju í Vík í Mýrdal, sem ekki var vitað að væru þar að störfum.
Fjölmiðlar: Ekkert að frétta
Lögmaðurinn og útvarpsmaðurinn góðkunni Pétur Gunnlaugsson mun taka héraðsdóm á ippon í máli haturslögreglunnar gegn Jóni Val Jenssyni. Þar mun Pétri takast að sannfæra dómstólinn um það sem George Soros reyndi um árið, þ.e. að refsiheimildin fyrir hatursorðræðu er afar óskýr og ekki fyrir leikmenn að átta sig á ákvæðinu. Jón Valur getur því haldið áfram að blogga um það sem honum dettur í hug, hvort sem það eru samkynhneigðir, trúlausir eða aðrir fávitar.
Björn Ingi heldur áfram að kaupa fjölmiðla til þess eins að koma gæðum þeirra niður í frostmark og án þess að útskýra fjármögnun ævintýra sinna. Eins og árið 2016 fá ýmsir blaðamenn og starfsfólk Björns Inga ekki fá greitt fyrir vinnu sína. Útgáfa verður slitrótt og viðskiptafélagar, fréttamenn og áskrifendur verða fyrir óþægindum af samskiptum við Björn Inga og hulduherinn í kringum hann. Eins og árið 2016 verður Blaðamannafélag Íslands handónýtt fyrir þá sem óska aðstoðar félagsins til að sækja laun sem ekki hafa verið greidd á réttum tíma eða í samræmi við samninga.
Þjónustuhlutverk 365 miðla við fjármálaelítuna verður í grunninn óbreytt árið 2017 frá fyrri árum þótt grímulausari og kjánalegri verði hún en undanfarin ár. Breytingar í atvinnulífinu valda því að einstaklingarnir bakvið sérhagsmunina breytast eitthvað en þjónustuhlutverkið helst óbreytt. 365 miðlar verða áfram áróðursráðuneyti smekkleysis, smáborgaraháttar og menningarlausrar auðhyggju. Að vanda verða nokkrir vinstrikrakkar í vinnu hjá fyrirtækinu til að skapa ásýnd fjölbreytileika.
Völvan sér fyrir andlát þjóðkunnrar persónu. Ekki er ólíklegt að þar sé um innhringjanda á Útvarpi Sögu að ræða.

Ár peninga og lífsstíls 2017
Breskum auðmönnum heldur áfram að blöskra fiskeldi í sjókvíum og meðferð íslenskra stjórnvalda á náttúruauðlindunum og sér völvan fram á að þeir kaupi upp fleiri landareignir til að stöðva þá óheillaþróun.
Kaldir vindar munu blása um Íslandsbanka á árinu þegar upp kemst að stjórnendur bankans hafa keypt á hrakvirði eignir sem bankinn hefur tekið af viðskiptavinum sínum.
Netverslun landsmanna nær nýjum hæðum en í ljós kemur að rúmur helmingur hennar er innflutningur á gölluðum varningi af AliExpress og í árslok gengur stór hluti þjóðarinnar í fötum sem passa ekki. Ásdís Halla Bragadóttir opnar meðferðarheimili fyrir fólk með netverslunarfíkn. Meðferðin, sem fer fram á netinu, verður gagnrýnd nokkuð fyrir að bera öll merki pýramídasvindls, en nýtur mikilla vinsælda.
Milistéttarveganismi verður fár á árinu en hann mun fólk aðhyllast sem tekst að eyða margfalt meira fé í matarinnkaup og detox-djúsun en það gerði á árunum fyrir hrun þegar gulltrufflukavíar var á boðstólunum. Millistéttarveganistarnir verða í grunninn sama fólk og tók bíllausan lífstíl með trompi á sínum tíma og seldi bílinn og keypti sér dýrara hjól en jeppann sem það átti áður.
Flestar fasteignir ríkisins sem einhver ásælist verða seldar á árinu. Lögreglustöðin í Reykjavík verður Hótel Engey, Héraðsdómur verður veitinga- og skemmtihúsið Veislan-Strákar!, og Þjóðskjalasafn Íslands verður afhent Guðlaugi Þór Þórðarsyni til umsýslu. Tollstjórahúsið verður einnig selt, auk allra eigna ríkisins við Laugaveg, Borgartún og Tryggvagötu. Ný stofnun verður sett á laggirnar, Sala opinberra eigna. Forstjóri hennar, Illugi Gunnarsson, telur stofnina vissulega leggja talsvert af mörkum til ríkissjóðs, en það sé þó þrátt fyrir allt –aðeins dropi í hafið.






