Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

46,64% og 32 þingmenn

$
0
0

Sagan endurtekur sig. Það lítur út fyrir að það myndist stjórn með minnihluta atkvæða og meirihluta þingmanna, aftur.

Á síðasta kjörtímabili sat stjórn með minnihluta greiddra atkvæða. Það er, allra sem mættu á kjörstað og greiddu atkvæði á einn eða annan veg. Hvort sem atkvæðið var ógild, autt, gilt eða greitt flokki sem náði svo ekki manni inn á þing. Sú stjórn hafði þó mjög nauman meirihluta gildra atkvæða. Með þennan mjög nauma lýðræðislega meirihluta sat svo sú stjórn með 60,3% þingsæta. „Mikill og sterkur meirihluti“ eins og vísað var í oftar en einu sinni á því kjörtímabili. „Meirihlutinn ræður“. „Hér voru kosningar“.

Meirihlutaræði er ekkert endilega sanngjarnt. Meirihlutinn getur auðveldlega haft rangt fyrir sér. Í núverandi kerfi getur meirihlutinn hins vegar gert nokkurn vegin hvað sem hann vill þó hann hafi rangt fyrir sér eða beiti valdi sínu á ósanngjarnan hátt. Það er ákveðið vandamál út af fyrir sig sem við þurfum stöðugt að vera á varðbergi gagnvart. Um það snúast öll önnur lýðræðisleg ferli en bein kosning. Lýðræði er nefnilega ekki bara atkvæðagreiðsla þar sem einn valmöguleiki fær meirihluta og aðrir valmöguleikar fá minnihluta. Lýðræði snýst einnig um það að valmöguleikarnir séu þeir bestu sem hægt er að bjóða upp á, að allir viti hvað val þeirra þýðir og að svo sé farið eftir niðurstöðum kosninganna. Hvað þýðir það þá fyrir lýðræði ef valmöguleiki sem fær minnihluta verði sá sem farið sé eftir?

Auglýsing

Það þarf ákveðna samvisku til þess að einblína á þingmannafjölda. 32 þingmenn af 63. Meirihluti. 50,8% þingmanna fyrir 46,64% atkvæða ætti að hringja einhverjum samviskubjöllum sem segðu: „þetta er eitthvað skrítið, þetta á ekki að geta gerst“. Samt gerðist þetta. Aftur. Í þetta skipti væri það ekki einu sinni á tæknilegan greidd atkvæði eða gild atkvæði. 46,64% eru gild atkvæði. Þessir þrír flokkar; Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Björt framtíð eru með 45,31% greiddra atkvæða. Að þeim detti í hug að reyna að mynda stjórn með það atkvæðahlutfall á bak við sig er stórkostlegt á einhvern hátt. Á lýðræðislegan hátt er það stórkostlega fáránlegt. Það væri svo fáránlegt að allir aðrir flokkar á þingi væru með hærra atkvæðahlutfall en stjórnarflokkarnir (þegar þeir flokkar sem komust ekki inn á þing eru ekki taldir með) eða með tæpu prósenti fleiri atkvæði.

Þetta er vandamál sem verður að laga. Þetta er vandamál sem ég bað um að yrði lagað á síðasta kjörtímabili.

Hver er staða verkefnis um breytingar á kosningalögum? Hvað er verið að gera til að næstu kosningar verði ekki svona ósanngjarnar …?

Í drögum að frumvarpi um endurskoðun kosningalaga, sem skilað var stuttu fyrir síðustu kosningar, eru engar lagfæringar á þessum galla. Enda tjáði nefndin okkur að það hefði ekki verið í hennar verkahring að laga þetta vandamál.

Hverju sem því líður þá langaði mig bara til þess að láta alla vita af þessu, aftur. Vegna þess að ef af þessu samstarfi DCA verður, meirihlutastjórn með minni hluta atkvæða, þá mun sú stjórn statt og stöðugt þurfa að svara út kjörtímabilið hvaða lýðræðislega umboð hún telur sig hafa til þess að nota sinn meirihluta á þingi til þess að fá lög og ályktanir samþykktar.

Meirihlutaræði er ekkert endilega sanngjarnt en minnihlutaræði er það bara alls ekki. Aldrei.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images