Í fréttabréfi upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu gefur að líta ljósmyndir eftir franskan ljósmyndara Julien Joly. Joly heimsótti Hornstrandir á norðanverðum vestfjarðarkjálkanum og það sem fyrir augu bar kom honum verulega á óvart en Hornstrandir hafa verið í eyði í heila öld. Í stað ósnortinna stranda voru strendurnar þakktar rusli sem borist hefur á land frá sjónum. Joly undirbýr sýningu mynda sinna í heimalandi sínu, Frakklandi.
Í viðtali við fréttabréfið segir Julian Joly:
„Ég hélt að staðir á borð við Hornstrandir hefðu fengið að vera í friði fyrir eyðandi hönd mannsins og plastmengun,“ sagði Joly í viðtali við fréttabréfið. „Það kom ekki síður illa við mig að sjá plast í maga fugla og sjávardýra.“
Í gær birti Kvennablaðið myndband frá Kyrrahafseyjunni, Midway Island, þar sem sjá má hvernig fuglar sem þar reyna að hafast við deyja umvörpum vegna plasts og rusl sem þeir borða.
Joly hyggst setja upp sýningu um rusl á Hornströndum í borginni Rennes á Bretagneskaga og má nærri geta að sú sýning verður sorglegur vitnisburður um ósnortnar strendur landsins.
Joly segir ennfrekar í viðtali við fréttabréfið:
„Ég var í leiðangri með hópi frá rannsóknarsetri heimskautarefsins. Þegar við komum á Hornstrandir áttum við leið um langa strandlengju sem var full af marglitum brotum úr flotholtum og netum. Íslensku ferðafélagar mínir sögðu mér að þetta hefði allt rekið á land með hafstraumum.“
Kvennablaðið hafði samband við Joly og fékk leyfi til að birta myndir hans frá Hornströndum.
Allar ljósmyndir eru höfundarverk Julian Joly en fleiri ljósmyndir eftir hann má sjá hér.