Í fyrrakvöld var ég að fylgjast með nágrönnum mínum að hengja upp jólaseríuna á húsið sitt. Þar sem ég fylgdist með þeim hugsaði ég með mér að þarna væri jólaandinn ríkjandi í fjölskyldunni. Skyndilega heyrði ég mömmuna orga upp og hún var mjög pirruð yfir því að ljósin virkuðu ekki. Það kveiknaði ekki á seríunni. Ég hugsaði með mér, það er eitthvað að þessari mynd. Jólin eiga að vera tími friðar, hamingju og gleði, en oft erum við pirruð, stressuð
og döpur. Af hverju gerist þetta og hvað getum við gert í því?
Ein aðal ástæða þess að við erum stressuð um jólin er vegna óraunhæfra væntinga. Frá því við erum börn erum við með væntingar til jólanna og um það hvernig þau eigi að vera. Í bíómyndunum sjáum við fullkomnar fyrirmyndir að jólunum, fjölskylda og vinir saman og allir svo hamingjusamir. Það sem við sjáum ekki er að þetta er að sjálfsögðu allt tilbúinn veruleiki.
Hér eru nokkrar ábendingar til þess að hjálpa þér að vera með raunhæfar væntingar:
Ekki dæma gildi gjafa út frá verðmiðanum. Besta gjöfin er ef tilgangurinn er að gleðja aðra. Ef þú gefur gjöf frá hjartanu er hún aldrei lítil.
Þú þarft ekki að gera allt fyrir jólin. Þú skalt forgangsraða hlutunum og segja nei ef þú hefur ekki tíma til að gera eitthvað. Dreifðu ábyrgðinni á aðra fjölskyldumeðlimi og nýttu tíma þinn vel.
Reyndu að deila með þeim sem minna mega sín. Ekkert er eins gefandi og að geta gefið öðrum með sér sem eru ekki eins heppnir og þú. Smá matur eða gjöf til fjölskyldna sem eru í erfiðleikum er góðverk og minnir okkur á tilgang jólanna.
Mundu að fjölskyldan þín er raunveruleg fjölskylda en ekki sjónvarps- fjölskylda. Það verða árekstrar og læti meðal systkina.
Ef mamma þín er ávallt að gagnrýna þig, þá mun hún gera það líka um jólin. Þetta þarf ekki að eyðileggja fyrir þér jólin. Þú getur ekki stjórnað hegðun annarra en þú getur stjórnað þínum viðbrögðum.
Notaðu tækifærið og lærðu að fyrirgefa. Ef allt annað bregst, taktu þá smá tíma með maka þínum eða góðum vini og fáðu útrás fyrir tilfinningar þínar.
Mundu að stundum fara hlutirnir ekki eins og þú vilt. Börnin þín drasla til og eru með læti. Þú gleymir að kaupa rafhlöður, þýða kalkúninn eða taka smákökurnar úr ofninum. Það verður mikil umferð og erfitt að finna stæði, fjölskyldumeðlimir verða uppteknir í öðrum boðum og hundurinn stekkur upp á þig með skítugar lappir og skilur eftir för í nýja jólakjólnum þínum.
Ef þú getur lært að höndla svona smáatriði vel þá muntu eiga betri jól og þú verður afslappaðri.
Ef þú getur ekki verið með ástvinum um jólin vegna vinnu, skilnaðar eða af öðrum ástæðum, skaltu reyna að finna hugmyndaríkar leiðir til að gera jólin sérstök. Sendu smákökur, gjafir og skemmtilegar upptökur eða myndir af fjölskyldumeðlimum. Þú getur einnig tekið einhvern annan dag og búið til ykkar “aðfangadag”. Vertu hugmyndarík. Ekki takmarka þig við daginn á almanakinu því það er andrúmsloftið og fólkið sem gildir.