Greinilegt er að fjöldi fólks er að glíma við skjaldkirtilsvandamál og met ég það af miklum lestri greinar sem ég skrifaði um daginn og má finna hér.
Áhugi minn á þessu vandamáli er mikill og ég rakst á gamla og góða grein eftir Mark Hyman, M.D. en hann er starfandi innkirtlasérfræðingur í Bandaríkjunum og hefur gefið út fjölda bóka um skjaldkirtilsvandamál. Hér koma nokkrir athyglisverðir punktar úr greininni eftir Dr. Hyman.
Talið er að vanvirkur skjaldkirtill sé að þjaka um 36 milljónir kvenna og 16 milljónir karlmanna. En afhverju skyldi þetta vera svona algengt? Ástæðurnar eru fjölmargar.
Orsakir vanvirks skjaldkirtils?
Ein algengasta orsökin eru eiturefni í umhverfi okkar, eins og til dæmis skordýraeitur í matvælum sem haga sér eins og hormón og trufla þannig starfsemi skjaldkirtilsins. Skordýraeitur í fæðu veldur vanvirkni í skjaldkirtli og hægum efnaskiptum og fólk á erfitt með að létta sig af þeim sökum. Í rannsóknum hefur komið fram kom að fólk losar sig við eiturefni eins og skordýraeitur i gegnum fituvef.
Þungmálmar í fæðu og í umhverfinu eins og t.d. kvikasilfur hafa einnig áhrif á starfsemi skjaldkirtilsins. Kvikasilfrið veldur vanvirkni í skjaldkirtli.
Svo er það blessuð streitan. Það er náið samband milli starfsemi skjaldkirtilsins og streitu. Því stressaðri sem þú ert, því hægar starfar skjaldkirtillinn.
Til þess að megi leiðrétta virkni skjaldkirtils þá þarf alltaf að ráðast á orsök vanvirkninnar til að hjálpa nýrnahettunum að starfa eðlilega. Annar stór áhrifaþáttur er krónísk bólga og helsta ástæða fyrir krónískum bólgusjúkdóm er glúten sem er prótein sem er að finna í hveiti, rúg, spelti og höfrum. Glúten er mjög algengur ofnæmisvaldur og veldur streitu og veikleika í þörmum. Slíkar bólgur hafa áhrif á starfsemi skjaldkirtilsins og draga úr virkni hans.
Að lokum getur skortur á næringarefnum haft mikil áhrif á starfsemi skjaldkirtilsins. Einkum skortur á joði, D-vítamíni, Omega-3 fitusýrum, Selen, Sink, A-vítamín og B-vítamín. Þannig er fjöldinn allur af ástæðum fyrir vanvirkni í skjaldkirtli og oft er þetta ekki greint eða misgreint í læknisheimsóknum.
Týpískur sjúklingur með vanvirkan skjaldkirtil er eftirfarandi:
Kona, rúmlega fertug, með fituprósentu upp á rúm 30%. Hún hamast í ræktinni, borðar holla fæðu og nærist reglulega en hún léttist ekki og með hverju árinu bætir hún á sig nokkrum kílóum. Hún finnur að hún er aðeins þyngri andlega og kvartar undan almennri þreytu.
Hvað þarf að gera?
Jú, mæla hórmónin TSH, T3 og T4 en margir læknar mæla einungis TSH en það er ekki nóg til að greina vanvirkni í skjaldkirtli. Það virðist vera mjög misjafnt hvernig læknar meta þetta, eftir hvaða gildum þeir fara og hvað gildi eru lögð til grundvallar til að þeir meðhöndli fólk við vanvirkum skjaldkirtli. Að mörgu er að hyggja þegar kemur að vanvirkni í skjaldkirtli en rétt meðhöndlun getur breytt lífsgæðum fólks verulega.
En hvernig er hægt að tækla vanvirkan skjalkirtil?
1. Leitaðu að orsök vanvirkninnar — Greina og meðhöndla hugsanlegar undirliggjandi orsakir fyrir vanvirkni í skjaldkirtlinum eins og t.d fæðuóþol, glútenóþol, næringarskort og streitu.
2. Hugaðu að mataræði þínu — Styddu við skjaldkirtilinn með góðri næringu. Neyttu matar sem er ríkur af joði, zinki, omega-3 fitusýrum og selen.
3. Minnkaðu streituna — Finndu leiðir til að útiloka streitu í lífinu, stundaðu jóga, hugleiðslu, gönguferðir, líkamsrækt eða hvað það sem virkar fyrir þig.
4. Stundaðu æfingar — Æfðu reglulega líkamsrækt sem kemur starfseminni vel af stað, þú svitnar og efnaskiptin verða hraðari.
5. Taktu inn bætiefni — Notaðu bætiefni sem auka virkni skjaldkirtilsins eins og joð, selen, zink og Moringa.
6. Farðu í hitameðferð — Farðu reglulega í gufubað til að losa auðveldar út eiturefni sem safnast hafa upp í líkamanum og hafa áfrif á starfsemi skjaldkirtilsins.
7. Láttu mæla skjaldkirtilshormón — Gangtu úr skugga um að þú fáir rétta greiningu og lyfjagjöf ef þarf eftir greiningu læknis.
Á Facebook er að finna frábæran spjallhóp fólks með skjaldkirtilssjúkdóma og þar er fólk einstaklega duglegt að deila ráðum og styðja hvort annað.
Góða heilsu!