Facebook viðtalið er við konu sem stakk af til útlanda, en fyrst seldi hún eigur sínar og húsnæði. Hún skrifar og kennir, ferðast um landið eins og fjallageit, hélt nýlega upp á stórafmæli og lék nýverið páfagauk í útvarpsleikriti. Hún hefur kennt við Háskóla Íslands, leitt ferðamenn á Grikklandi og synt allsber í sjó. Ég sá dularfullar stöðuuppfærslur frá henni á Facebook og narraði hana í viðtal (á milli þess sem hún stakk sér til sunds í fjarlægu sólarlagi.) Hér birtist viðtalið óklippt, óritskoðað með öllum innsláttarvillum beint af Facebook.
Ísland – Nígaragúa.
Konan er Hlín Agnarsdóttir rithöfundur, kennari, leiðsögumaður og leikstjóri