Áhugasömum er boðið til hádegisfundar í Iðnó, laugardaginn 18. mars klukkan tólf, þar sem tveir sérfræðingar sem sérstaklega hafa rannsakað hvaða þýðingu sölumáti á áfengi hefur á neyslu þess og síðan frekari afleiðingar kynna niðurstöður sínar.
Hildigunnur Ólafsdóttir er afbrotafræðingur, dr. philos frá Háskólanum í Osló; vann lengi við áfengisrannsóknir á geðdeild Landspítalans og var síðan sjálfstætt starfandi fræðimaður með starfsstöð í ReykjavíkurAkademíunni. Hún hefur rannsakað og birt efni á sviði áfengisrannsókna og afbrotafræði.
Heiti erindis Hildigunnar Ólafsdóttur er: Hvað segja rannsóknir um afnám einkasölu á áfengi?
Hlynur Davíð Löve, læknir á Landspítala háskólasjúkrahúsi lauk námi frá Kaupmannahafnarháskóla á síðasta ári og fjallaði útskriftarritgerð hans um algengi, nýgengi og dánartíðni áfengistengdra sjúkdóma og lífslíkur í Danmörku, Svíþjóð og Íslandi. Í ritgerðinni var sjónum beint að löggjöf og reglum í hverju landi og hver áhrif dreifingarmátinn hefði á sölu og neyslu áfengis og tíðni áfengistengdra sjúkdóma.
Heiti erindis Hlyns Davíðs Löve er: Mynstur áfengistengdra sjúkdóma í Svíþjóð, Danmörku og Íslandi og tengsl þeirra við löggjöf.