Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Vísum ekki börnum á flótta úr landi

$
0
0

Í gær fór ég í heimsókn, sem væri nú ekki í frásögu færandi, nema vegna þess að þessi sex manna fjölskylda sem ég heimsótti, sem m.a. samanstendur af sex ára stúlku og þrettán ára dreng, kom til Íslands á síðasta ári í leit að skjól og vernd frá átökum, ofsóknum og neyð í heimalandi sínu Alsír. Ekki er hægt að ferðast beina leið frá Alsír til Íslands svo til þess að komast úr landi varð fjölskyldan sér úti um spænska vegabréfsáritun, og þar millilentu þau á leiðinni til Íslands, landsins sem þau höfðu heyrt að væri land „friðar og mannréttinda.“ Á Spáni sótti fjölskyldan ekki um vernd en vegna þess að þau millilentu þar hafa íslensk yfirvöld ákveðið að brottvísa fjölskyldunni strax til Spánar, á grundvelli Dyflinarreglugerðarinnar, án þess að að taka umsókn þeirra um alþjóðlega vernd fyrir hér á landi.

Smelltu hér til að skora á yfirvöld að taka hælisumsókn fjölskyldu Sid til efnislega skoðun og leyfið henni að vera á Íslandi!

Auglýsing

Á meðan fjölskyldufaðirinn, Sid, lýsti því fyrir mér hvers vegna fjölskyldan neyddist til þess að leggja á flótta frá heimalandi sínu, Alsír, sem af íslenskum stjórnvöldum, ESB og alþjóðlegum mannréttindasamtökum er ekki talið vera svokallað „öruggt ríki,“ byggði hin sex ára gamla Aya upp sjálfstraust til þess að koma og tala við þessa ókunnugu konu sem var í heimsókn hjá þeim. Þegar Aya kom loksins fram, eftir að við höfðum hellt í okkur kaffi og bragðað á pönnukökum, kom í ljós að hún talar fjögur tungumál, hún gengur í skóla hér á landi og hefur eignast góðar vinkonur hér. Hið sama á við um bróður hennar Hichem sem er 13 ára og tvíburana Aymane og Imane.

Íslensk stjórnvöld ætla að senda Sid-fjölskylduna til Spánar. Spánn er eitt af þeim ríkjum innan Schengen-samstarfsins sem samþykkir fæstar umsóknir um alþjóðlega vernd á sama tíma og umsóknum fjölgar á milli ára. Árið 2015 fengu einungis 220 einstaklingar stöðu sína sem flóttafólk viðurkennda. Enginn fékk dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Þrátt fyrir að umsóknum um alþjóðlega vernd hafi fjölgað um nokkur þúsund á milli áranna 2015 og 2016 fjölgaði þeim sem fengu stöðu flóttafólks á Spáni einungis um rúmlega 100 samkvæmt fyrstu útreikningum. Í lok árs 2016 voru 20.365 óafgreiddar umsóknir um alþjóðlega vernd og þeim fjölgar hratt. 0,7% af umsóknum um alþjóðlega vernd frá Alsýringum voru samþykktar á Spáni.

Auglýsing

Bent hefur verið á ýmsa galla í spænska kerfinu sem heldur utan um málefni hælisleitenda og flóttafólks og ólöglega afgreiðslu spænskra yfirvalda á umsóknum um alþjóðlega vernd auk þess sem spænsk stjórnvöld hafa gerst sek um að brjóta á réttindum barna á flótta, m.a. með því að brottvísa þeim úr landi án málmeðferðar og með því að taka ekki tillit til aldurs þeirra og þroska. Áhyggjur Sid-fjölskyldunnar af því að fá ekki réttláta málsmeðferð á Spáni sem verði til þess að þau verði send til baka til Alsír verða því að teljast réttmætar.

Ísland hefur undirritað Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í honum segir m.a. að „allar ákvarðanir eða ráðstafanir yfirvalda er varða börn skulu byggðar á því sem er börnum fyrir bestu.“ Börn á flótta er gríðarlega viðkvæmur hópur og mörg börn eyða restinni af ævi sinni í að takast á við líkamlegar og andlegar afleiðingar þess að vera á flótta. Það getur ekki á nokkurn hátt talist vera börnunum fyrir bestu að þau verði rifin á nýjan leik frá heimili sínu, vinum, skóla og samfélagi sem þau eru löngu byrjuð að móta og mótast af, og sett á flótta í ókunnugu landi á nýjan leik.

Þegar ég yfirgaf heimili Sid-fjölskyldunnar kvöddu Sid og kona hans, Mimouna, með þeim orðum að það eina sem þau vilja er framtíð fyrir börnin þeirra. Ég hvet íslensk stjórnvöld til þess að setja hagsmuni barna þeirra í forgang og taka umsókn þeirra um skjól og vernd til meðferðar hér á landi. Ég hvet ykkur til þess að gera slíkt hið sama og skrifa undir áskorun til stjórnvalda þess efnis!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283