Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

„Dómsmálaráðherra verður að grípa í taumana!“

$
0
0

„Mér finnst fullkomlega galið að maður sem á líf og fjölskyldu hérna geti endað á götunni á Ítalíu og jafnvel á að verða tekinn af lífi í Íran því “computer says no”,“ sagði Andrés Ingi Jónsson, þingmaður VG, á Alþingi í gær. Hann gerði mál Amir Shokrogozar, hælisleitanda frá Íran, að umfjöllunarefni. Amir var vísað úr landi til Ítalíu á forsendu Dyflinnarreglugerðarinnar þrátt fyrir að hafa ekki búið þar í nokkur ár. „Fyrir rúmu ári hættu íslensk stjórnvöld að senda hælisleitendur til baka til Ítalíu vegna frétta af óviðunandi aðstæðum flóttamanna þar í landi. Þeirri ákvörðun var illu heilli snúið nú um áramótin. Ítalía er það sem kallast í útlendingalögum “öruggt ríki”. Þetta er vandmeðfarið hugtak. Þó að ríki séu örugg í þeim skilningi að þar ríki ekki skálmöld og að þar virki bæði stjórnsýsla og réttarkerfi, þá geta þau verið allt annað en örugg fyrir tiltekna einstaklinga og hópa.“

Auglýsing

Þetta segir Andrés eiga við í tilfelli Amirs. „Ítalía reyndist fjarri því að vera “öruggt ríki” fyrir Amir. Hann varð fyrir kynferðisofbeldi í flóttamannabúðum. Eftir það bjó hann á götunni mánuðum saman áður en hann kom sér hingað til Íslands fyrir tæpum tveimur árum og sótti um hæli.“

Þingmaðurinn geri kröfu íslenskra yfirvalda um gögn frá Íran, landinu sem Amir er á flótta frá, að umfjöllunarefni. Amir fann ástina hér á landi og gerði tilraun til að giftast kærasta sínum. „Á þessum tíma hefur Amir fest hér rætur og eignast vini. Hann fann ástina og hefur lengi reynt að giftast íslenskum unnusta sínum, en ekki fengið vegna þess að íslensk stjórnvöld rukka hann um pappíra frá þeim írönsku.

Auglýsing

Stöldrum aðeins við þetta: Stjórnsýslan okkar er að rukka flóttamann um pappíra frá landinu sem hann er að flýja. Pappíra til að hann geti gengið í samkynja hjónaband. Hvernig ætli Íranir taki þeirri beiðni?“

Andrés segir dómsmálaráðherra verða að grípa inn í málið. Dómsmálaráðherra var stödd í þinghúsinu þegar þingmaðurinn flutti ræðu sína og beindi hann orðum sínum beint að henni. „Nú berast þær fréttir að Amir, maðurinn sem við sendum úr landi, hafi fengið synjun á hælisumsókn sína á Ítalíu. Það stefnir því í að hann verði sendur aftur til Írans ef ekkert verður aðhafst.

Ábyrgðin er okkar. Dómsmálaráðherra verður að grípa í taumana!

Mér finnst fullkomnlega galið að maður sem á líf og fjölskyldu hérna geti endað á götunni á Ítalíu og jafnvel á að verða tekinn af lífi í Íran því “computer says no”.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283